Mývatnsstofa ehf
Kt. 710507-3170
Hlíðavegur 6
660 Mývatn
Kristín Sif
Símanr.: +354 777 0862
kristin@visitmyvatn.is
Í áttunda sinn verður haldið utanvegarhlaup í Mývatnssveit, laugardaginn 29. maí 2027.
Hlaupið hefst stundvíslega kl 15:00.
Í ár verður boðið upp á tvær spennandi vegalengdir, þar sem hlauparar fá að upplifa einstakt eldfjallalandslag Mývatnssveitar – hraun, gíga, fjöll og stórbrotið útsýni.
Hraunið er 10 km utanvegahlaup sem hefst við Jarðböðin við Mývatn. Þaðan liggur leiðin niður að hinu tilkomumikla Hverfjalli, einum þekktasta eldgíg landsins, hlaupið þar upp og niður aftur svo áfram með jaðri Dimmuborga, þar sem sérstæðar hraunmyndanir skapa magnaða umgjörð um hlaupið.
Leiðin er með breyttu sniði í ár og býður upp á fjölbreytt undirlag, fallegt útsýni og einstaka nálægð við eldfjallanáttúru Mývatnssveitar.
Að loknum 10 kílómetrum er komið aftur í mark við Jarðböðin – þar sem hlýtt jarðhitavatn, gufubað og dásamleg þjónusta Jarðbaðanna bíður hlaupara eftir átökin. - Aðgangur í Jarðböðin fylgir skráningu.
Gígarnir er krefjandi og ævintýralegt 29 km utanvegahlaup fyrir þá sem vilja upplifa hið magnaða eldfjallalandslag Mývatnssveitar af fullum krafti.
Hlaupið hefst við Jarðböðin við Mývatn og þaðan liggur leiðin niður hraunið og sandana síðan upp hlíðar Hverfjalls þar sem magnað útsýni er yfir svæðið, Dimmuborgir og hið gullfallega Mývatn blasir við meðan hlaupið er eftir gígbarminum, hlaupin er hálfur gígbarmurinn og niður hinumegin á Hverfjallli.
Frá Hverfjalli er haldið áfram inn að Lúdentaborgum og þaðan upp á Lúdent. Lúdent setur sterkan svip á landslagið austan Mývatns og af leiðinni fá hlauparar að upplifa víðáttuna, gígana og hraunin sem einkenna þetta einstaka svæði. Hér er eldfjallasaga Mývatnssveitar allt í kring – landslag mótað af öflugum náttúruöflum og síbreytilegt útsýni eftir því sem ofar dregur og stígarnir jafn fjölbreyttir og landslagið sjálft.
Eftir Lúdent er snúið til baka og stefnan tekin aftur á Hverfjall. Þar bíður hlaupara önnur ferð upp og yfir Hverfjall, gígurinn kláraður á leiðinni tilbaka til að loka hringnum uppi á Hverfjalli áður en lokakaflinn liggur aftur að Jarðböðunum þar sem hlaupið er í gegnum hraun og fallegt umhverfi áður en komið er í mark.
Leiðin býður upp á góða hækkun og fjölbreytt utanvegalandslag. Hraun, svartir sandar, eldgígar, fjallshlíðar og víðáttumikið útsýni gera leiðina að sannkölluðu eldfjallaævintýri – þar sem áskorunin er stór en umhverfið ekki síður eftirminnilegt.
Nákvæm leiðarlýsing og kort verða birt þegar nær dregur.
Að loknum 29 kílómetrum er komið aftur í mark við Jarðböðin – þar sem hlýtt jarðhitavatn, gufubað og dásamleg þjónusta Jarðbaðanna bíður hlaupara eftir átökin. - Aðgangur í Jarðböðin fylgir skráningu.
Gígarnir – 29 km verður ITRA-skráð hlaup.
Forskráningargjald til 31.des :
10 km - 9.900kr
29 km - 13.900 kr
Þáttökugjald 1.jan - 30. apríl
10 km - 11.900 kr
29 km - 15.900 kr
Þáttökugjald 1.maí og skráning á staðnum.
10 km - 12.900 kr
29 km - 16.900 kr
Dagskrá:
Kl 15:00 - 29 km hlaup ræst frá Jarðböðunum\
Kl 17:00 - 10 km hlaup ræst frá Jarðböðunum
Hlaupaleiðin
Sjá á heimasíðu hlaupsins þegar nær dregur og einnig er frábært að fylgja Hraunhlaupinu á instagran @hraunhlaupid\
Úrslit og verðlaun
Úrslit verða birt í rauntíma auk þess sem tímar verða sendir í sms-i til hlaupara.
Úrslit fyrir verðlaunasæti eru staðfest við verðlaunaafhendingu en að öðru leyti telst birting úrslita á timataka.net sem lögleg birting á úrslitum.
Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu 3 sæti í karla og kvennaflokki
Annað
Kynnið ykkur svo dagskrá helgarinnar inni á www.myvatnmarathon.com og gisti, matar og afþreyingarmöguleika inni á www.visitmyvatn.is.