Bakgarður 101

Íslenska English

Keppnishaldari

Náttúruhlaup
Kt. 570112-0310
bakgardur@natturuhlaup.is

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Bakgarður 101 - Bakgarður Náttúruhlaupa


Bakgarður 101 (Iceland Backyard Ultra) verður haldinn í sjötta sinn laugardaginn 1. maí 2027. Bakgarður 101 er systurkeppni Bakgarðs Náttúruhlaupa sem fer fram í Heiðmörk í september ár hvert. Keppnin verður hefðbundið bakgarðshlaup og fer eftir ákveðinni uppsetningu og reglum (https://bigsbackyardultra.com/backyard-ultra-rules/). Hlaupinn er 6,7 km hringur á hverjum klukkutíma. 


Skráning hefst kl. 12:00, föstudaginn 30. október


Hvað eru bakgarðshlaup (Backyard Ultra)?

Bakgarðshlaup eru tegund ofurhlaupa þar sem þátttakendur verða að hlaupa 6706m (4,167 mílur) á innan við klukkutíma. Hver hringur byrjar alltaf á heila tímanum. Eftir hvern hring má nota tímann sem er eftir af klukkutímanum til að hvílast og undirbúa sig fyrir næsta hring. Þetta er endurtekið á klukkutíma fresti þar til aðeins einn hlaupari er eftir í brautinni og klárar síðasta hringinn einn. Heildarvegalengd hlaupara sem klárar 24 hringi (24 klukkutímar) eru 100 mílur (160,8km)


Staðsetning: Mjölnisheimilið, Öskjuhlíð (Flugvallarvegur 3-3a)

Tímasetning: Keppnin hefst kl. 9:00, laugardaginn 1. maí 2027

Hlaupaleið: 6,7 km hringur um skemmtilega stíga Öskjuhlíðar og góða göngustíga meðfram henni og Nauthólsvík (um 60% malar- og náttúrustígar og 40% malbik).

Sjá leiðina á Garmin Connect: https://connect.garmin.com/app/course/342908746

(Leiðin er birt með fyrirvara um breytingar).

Vegalengd: Þú hleypur eins marga hringi og þú getur!

Tímamörk: Engin tímamörk nema að klára hvern 6,7 km innan klukkutíma

Úrslit: Allir sem taka þátt í Bakgarðshlaupinu fá skráða fjölda hringja og vegalengdina sem þeir klára. Úrslit verða birt á timataka.net. Þau sem fara lengra en 24 hringi fá árangur skráðan á Big’s síðunni (https://bigsbackyardultra.com/world-rankings/)

Verðlaun: Þátttöku-/DNF viðurkenning


Heimasíða keppninnar

Facebook síða: facebook.com/icelandbackyardultra

Instagram keppninnar: https://www.instagram.com/iceland_backyardultra/


Góð drykkjarstöð og aðstaða fyrir hlaupara verður við Mjölnisheimilið. Starfsfólk Náttúruhlaupa verður til taks allan tímann fyrir þátttakendur í hvíldartímanum. Veitingar verða í boði með reglulegu millibili. 


Þátttakendur fá ítarlegar upplýsingar um keppnina og reglur með góðum fyrirvara.


Skráning fer fram á Netskráning.is og opnar föstudaginn 30. október kl. 12:00. 

Skráningar verða ekki endurgreiddar eða færðar yfir á aðra bakgarðskeppni.


Hægt verður að gera nafnabreytingar á skráningarsíðunni (www.netskraning.is) til og með 18. apríl.

Varist að kaupa falsaða miða af óprúttnum aðilum í gegnum Facebook eða greiða áður en þú færð miða í hendur til að nafnabreyta. ATH. aðeins er hægt að nafnabreyta hverjum miða einu sinni. Vertu viss um að skrá rétt nafn, fæðingardag og netfang. 


Verð: 16.400 kr.


Innifalið í skráningu:

  • Keppnisnúmer, tímataka
  • Hvíldaraðstaða í Mjölni, öryggis- og brautargæsla
  • Drykkir (Gatorade) og létt snarl (frá Näak, ávextir og fleira gott) á drykkjarstöð allan tímann 
  • Súpa og brauð fyrir þau sem eru í keppninni eða ljúka henni um 13:00-15:00 á laugardeginum. Létt máltíð seinni partinn á laugardeginum og pítsa á laugardagskvöld fyrir virka keppendur.
  • Salernisaðstaða í og við Mjölni
  • Þátttökuverðlaun og viðurkenning


Fylgist með á Instagram og Facebook síðum hlaupsins: 

Instagram keppninnar

Facebook síða keppninnar


Skipuleggjendur keppninnar: Náttúruhlaup 


Nánari upplýsingar fást í gegnum netfangið: bakgardur@natturuhlaup.is


Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

01.05.2027

Skráningarfrestur: 18.04.2027 23:59

Bakgarður Náttúruhlaupa