Snæfellsjökulshlaupið 2025

Íslenska English

Keppnishaldari

Snæfellsjökulhlaupið
Kt. 510122-0380
Sigrún Ólafsdóttir, Ingunn Ýr Angantýs
Símanr.: 894 2446, 8587670
sjhlaup@gmail.com

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning
Snæfellsjökulshlaupið

Snæfellsjökulshlaupið verður haldið 21. júní n.k og verður þetta í fjórtánda skiptið sem hlaupið er haldið.

  • Í ár verður fjöldi þátttakenda takmarkaður við 350 manns.
  • Skráningu lýkur kl. 24:00 sunnudaginn 15. júní.
  • Þar sem upphafsstaður hlaupsins er rúmgóður verða allir ræstir í einu.
  • Mælst er til að hröðustu hlaupararnir séu fyrstir í ræsingu.
  • Drykkjastöðvarnar verða tvær. Þar verður boðið upp á vatn og orkudrykk. Við mælum með því að hlauparar séu með eigin drykkjarílát, umhverfisvæn pappaglös verða í boði fyrir þá sem þurfa.
  • Vegleg útdráttarverðlaun verða í boði.
  • Allir þátttakendur fá smá glaðning í poka að hlaupi loknu.

Hlaupaleiðin

Hlaupaleiðin er um 22 km og er stór hluti hennar malarvegur. Fyrstu 8 km þarf að hlaupa upp í móti í c.a. 700 – 750 m hækkun. Eftir það fer hlaupaleiðin að lækka þar til komið er til Ólafsvíkur. Hlauparar eiga von á að þurfa kljást við snjó og drullu frá 1 km til 7 km af leiðinni, það eftir því hvað veturinn hefur verið snjóþungur. Hlauparar fá á leiðinni að upplifa einstaka náttúrufegurð og að öllu ógleymdu allri þeirri orku sem Snæfellsjökull býr yfir.

Tvær drykkjarstöðvar verða á leiðinni á c.a. 5 km millibili sem Björgunarsveitin Lífsbjörg mun sjá um.

Á Arnarstapa verður bíll þar sem hlauparar hafa kost á að skilja eftir auka hluti og fatnað sem verður afhendur í Íþróttahúsinu í Ólafsvík. Einnig verður tekið við fatnaði við drykkjarstöðvarnar ef þess þarf. Allur fatnaður og búnaður verður afhentur í Sjómannagarðinum að hlaupi loknu.

Staður og tímasetning

  • Hlaupið verður ræst kl 12:00 frá Arnarbæ (Svartur torfbær) við veginn á Arnarstapa þaðan sem hlaupið er yfir Jökulháls til Ólafsvíkur á Snæfellsnesi.
  • Rúta verður í boði fyrir þá sem vilja frá Ólafsvík til Arnarstapa og mun hún leggja af stað kl. 10:45 frá íþróttahúsinu í Ólafsvík og kostar 2.500 kr. Ólafsvík er um 2,5 klst. akstur frá Reykjavík.

Skráningargjald

Þátttökugjald í skráningu er 8.000 kr. Hægt er að afskrá sig og fá endurgreiðslu þar til 10 dögum fyrir mót, eftir það er þátttökugjald ekki endurgreitt. Skráning fer fram hér á netskraning.is. Opið er fyrir skráningu til kl. 24:00 sunnudaginn 15. júní. Ekki verður hægt að skrá sig á staðnum.

Aldursflokkar

  • 60 og eldri
  • 50 - 59 ára
  • 40 - 49 ára
  • 39 ára og yngri

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir bestu tímanna í hverjum flokki og einnig verður fjöldi útdráttarverðlauna.

Gagnaafhending

Verður frá 15-18 í Sportvörum (Dalvegi 32A í Kópavogi) miðvikudaginn 18 júní. Einnig verður hægt að nálgast gögnin á hlaupdegi bæði í íþróttahúsinu Ólafsvík áður farið er í rútu og á Arnarstapa Arnarbæ þar sem hlaupið verður ræst.

Nánari upplýsingar

Ingunn Ýr Angantýsdóttir s:858 7670 og netfangið sjhlaup@gmail.com
Sigrún Ólafsdóttir s:8942446 og netfangið sjhlaup@gmail.com



Upplýsingar um keppanda


Aukaupplýsingar í neyðartilfelli
Nauðsynlegar upplýsingar fyrir mótshaldara í neyðartilfelli.

Keppnisgreinar

21.06.2025