Mýrdalshlaupið 2025
Reglur Mýrdalshlaupsins
1. Skilmála varðandi skráningar, endurgreiðslur o.þ.h. má finna á skráningarsíðu hlaupsins. Með skráningu í hlaupið samþykkja þátttakendur skilmála hlaupsins og skuldbinda sig til að lúta reglum þess. Þátttakendur skulu fara eftir þeim leiðbeiningum sem starfsmenn hlaupsins leggja til, þ.m.t. tilmæli um fatnað og búnað.
2. Aldurstakmörk: Ekkert aldurstakmark er í skemmtiskokkið. Í 10 km hlaupið þarf að vera 16 ára á árinu. Í 21km hlaupið þarf að vera 18 ára á árinu.
3. Tímamörk: Engin tímamörk eru í skemmtiskokkinu og 10 km hlaupinu. Tímamörk verða í 21 km hlaupinu og eru þau sett með öryggi hlauparans og skipulag brautarvörslu í huga. Til að ná tímatakmörkum verða hlauparar að vera farnir frá drykkjarstöð nr. 2 (u.þ.b 13 km og 620 m uppsöfnuð hækkun frá ræsingu) eftir 2 klukkutíma og 30 mínútur frá ræsingu. Ef hlaupari nær ekki þeim tímatakmörkum telst hann hafa lokið keppni í hlaupinu og verður boðið far niður í Víkurþorp. Þessi regla á við um alla þátttakendur og er ekki hægt að semja við starfsmenn á staðnum um aðra kosti.
4. Stranglega bannað er að henda frá sér rusli, fatnaði eða búnaði á leiðinni. Hlauparar verða að vera með sín eigin glös eða brúsa til að nota á drykkjarstöðvum. Ekki er boðið upp á einnota pappaglös á drykkjarstöðvum.
5. Þátttakendur skulu hafa hlaupanúmer sýnilegt framan á sér í mittishæð til þess að auðvelda og flýta skráningu. Til að fá skráðan tíma og í öryggisskyni skulu allir þátttakendur fara yfir tímatökumottur í rásmarki, á tékkpunktum og í endamarki
6. Óheimilt er að þiggja utanaðkomandi aðstoð einhvers sem ekki er skráður þátttakandi í hlaupið, nema í neyðartilvikum. Það er á ábyrgð hvers þátttakanda að neita utanaðkomandi aðstoð nema um neyðartilvik sé að ræða. Það er á ábyrgð hvers þátttakanda að hlaupa ekki með utanaðkomandi hlaupara (héra). Þátttakendur mega aðstoða aðra þátttakendur með öryggi sitt og annarra í huga.
7. Viðurlög: Þátttakendur sem ekki fara eftir reglum hlaupsins eiga á hættu að verða skráðir úr hlaupinu
8. Skipuleggjendur áskilja sér rétt til að breyta brautinni, aflýsa hlaupinu eða færa rástíma með stuttum fyrirvara vegna veðurs eða annarra ófyrirsjáanlegra aðstæðna með öryggi þátttakenda að leiðarljósi. Við slíkar aðstæður fæst þátttökugjald ekki endurgreitt.
9. Skipuleggjendur áskilja sér rétt til að krefjast ákveðins skyldubúnaðar sem hlaupari þarf að hafa í ljósi aðstæðna og veðurs á keppnisdegi.