Mýrdalshlaupið 2025

Íslenska English

Keppnishaldari

Mýrdalshlaup, félagasamtök
Kt. 590520-0980
myrdalshlaup@gmail.com

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning
Mýrdalshlaupið 2025

Mýrdalshlaupið, skemmtilegt og krefjandi utanvegahlaup í mikilli náttúrufegurð, verður haldið í tólfta sinn laugardaginn 31. maí 2025.
Skráning hefst föstudaginn 10. janúar kl. 12 á hádegi.

Vegalengdir

Boðið verður upp á þrjár vegalengdir; 21 km með 1000 m hækkun og tæpa 10 km með 400 m hækkun. Þá er einnig boðið upp á 3 km skemmtiskokk.

  • 21 km - 1100 hæðarmetrar - Ræst kl. 11:00 - Viðurkennd ITRA braut sem gefur 1 punkt.
  • 10 km - 490 hæðarmetrar - Ræst kl. 11:00 - Viðurkennd ITRA braut.
  • 3 km skemmtiskokk - Ræst kl. 11:30

Skráning, þátttökugjald og afhending gagna

Skráning fer fram á netskraning.is og hefst föstudaginn 10. janúar 2025 kl. 12 á hádegi. Skráningu fyrir 10 km og 21 km lýkur annað hvort þegar hámarksfjölda er náð eða á miðnætti 24. maí 2025.
  • 21 km - Þátttökugjald er 9.000 kr - 18 ára (á árinu) aldurstakmark.
  • 10 km - Þátttökugjald er 6.500 kr - 16 ára (á árinu) aldurstakmark.
  • 3 km skemmtiskokk - Frítt - Ekkert aldurstakmark.
Annað:
  • Hámarksfjöldi þátttakenda er 500 manns í 21 km og 10 km samtals.
  • Ekki verður biðlisti í hlaupið, ekki verður hægt að fá endurgreitt, en leyfilegt er að gera nafnabreytingar.
  • Innifalið í þátttökugjaldi er brautarvarsla, tímataka með flögu, þátttökuverðlaun og hressing eftir hlaup.
  • Allir keppendur fá verðlaun fyrir þátttöku. Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki. 
  • Einnig verða útdráttarverðlaun.
Afhending gagna mun fara fram í verslun Eirbergs, Stórhöfða 25, Reykjavík í vikunni fyrir hlaupið. Nánar auglýst síðar.

Staðsetning og hlaupaleiðir

Keppendur mæti við Víkurskóla í Vík í Mýrdal um 30 mínútum fyrir ræsingu og hópurinn gengur/skokkar saman niður í Víkurfjöru þar sem hlaupið verður ræst. Búast má við 5-10 mínútna göngu.
Leiðin verður vel merkt og brautarvarsla á leiðinni. Tvær drykkjarstöðvar verða í lengra hlaupinu (4,5 km og 13 km) og ein í styttra (4,5 km).

Hægt er að sjá 10 km og 21 km hlaupaleiðirnar á korti hér neðst á síðunni.

3 km leiðin:
Skemmtiskokkið er ræst við íþróttamiðstöðina og er hlaupið meðfram Reynisfjalli að fjörunni. Þarna er sendinn stígur með melgresi og grasi í bland. Áður en komið er niður í fjöru er beygt til vinstri inn á varnargarð sem er í raun malarvegur og hlaupið eftir honum yfir göngubrú á Víkurá. Þar er beygt til vinstri og hlaupið stuttan spöl á malbikinu áður en beygt er aftur til vinstri inn á malarstíg og yfir aðra göngubrú. Þaðan liggur leiðin beint í markið eftir malbikuðum vegi.

10 km leiðin:
Hlaupið er ræst í Víkurfjöru. Hlaupið er í átt að Reynisdröngum eftir sandinum u.þ.b. 600 m. Beygt er upp úr fjörunni upp við Reynisfjall og hlaupið meðfram fjallinu. Þá er komið inn á Víkurbraut sem er malbikuð gata. Hlaupið er eftir Víkurbraut þar til komið er að Bakkaskarði, þar er beygt til vinstri upp hlíðina. Leiðin liggur síðan eftir malarvegi upp á Reynisfjall. Þegar farið hefur verið fram hjá pípuhliðinu á brún Reynisfjalls er beygt til vinstri inn á þröngan stíg sem liggur eftir allri fjallsbrúninni. Útsýnið yfir Vík og Reynisdranga er stórkostlegt á þessum kafla leiðarinnar.

Drykkjarstöð verður fremst á fjallinu eftir u.þ.b. 4,5 km (við hús sem stendur þar) og síðan er hlaupið áfram eftir vesturbrún fjallsins. Þegar komið er niður Reynisfjall vestan megin er beygt til hægri og farið aftur upp fjallið eftir gömlum malarvegi yfir fjallið, þ.e í átt að Vík. Þaðan er síðan hlaupin sama leið aftur niður í þorpið. Markið er við íþróttamiðstöðina.

10 km leiðina má skoða nánar hér: https://tracedetrail.com/en/trace/trace/128844

21 km leiðin:
Lengra hlaupið er á sömu braut og styttra hlaupið í byrjun en beygir af leið eftir u.þ.b. 7 km. Þá er hlaupið inn eftir Reynisfjalli í norður í stað þess að fara niður í þorpið eins og styttra hlaupið gerir.

Þessi kafli er ýmist kindagötur eða melar og móar með engum stíg á köflum. Farið er niður af fjallinu við fjallsendann, en þar hefur verið komið fyrir keðju til að aðstoða hlaupara við að fara niður mesta brattann. Síðan er farið yfir þjóðveginn og hlaupið eftir gömlum vegi upp að Höttu. Þar er talsverð hækkun og hlaupið utan stíga síðasta kílómeterinn upp á topp á Höttu. Flestir telja þetta vera erfiðasta hluta leiðarinnar. Frá toppi Höttu er síðan mjög skemmtilegt niðurhlaup á göngustígum niður í Víkurþorp. Þar eru mismunandi brattir kaflar en flatir inn á milli. Hluti þessarar leiðar er þó nokkuð brött og getur reynst þreyttum fótum erfið. Hlaupið endar við íþróttamiðstöðina eins og styttra hlaupið. Undirlagið í hlaupinu er u.þ.b. 80% á stígum og slóðum, 18% utan stíga og 2% á malbiki.

Vakin er athygli á því að 21 km hlaupið er krefjandi og einungis fyrir þá hlaupara sem hafa farið í utanvegahlaup áður og teljast nokkuð vanir að hlaupa utanvega. Um tæknilega braut er að ræða og brött niðurhlaup á köflum.
Þessi hlaupaleið er viðurkennd af ITRA og gefur 1 punkt og ITRA stig. 
Hér er hlekkur inn á ITRA síðu hlaupsins: https://itra.run/Races/RaceDetails/Myrdalshlaup.Myrdalshlaupid.21.km/2025/100166 
21 km leiðina má skoða nánar hér: https://tracedetrail.com/en/trace/trace/120682

Tímamörk

Tímamörk verða í 21 km hlaupinu nú eins og áður. Eru þau sett með öryggi hlauparans og skipulag brautarvörslu í huga. Til að ná tímatakmörkum verða hlauparar að vera farnir frá drykkjarstöð nr. 2 (u.þ.b 13 km og 620 m uppsöfnuð hækkun frá ræsingu) eftir 2 klukkutíma og 30 mínútur frá ræsingu. Ef hlaupari nær ekki þeim tímatakmörkum telst hann hafa lokið keppni í hlaupinu, skilar númeri sínu og verður boðið far niður í Víkurþorp. Þessi regla á við um alla þátttakendur og er ekki hægt að semja við starfsfólk á staðnum um aðra kosti.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um hlaupið á heimasíðu hlaupsins myrdalshlaup.is.
Vinsamlegast hafið samband við aðstandendur hlaupsins á netfangið: myrdalshlaup@gmail.com


Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

31.05.2025