Kerlingarfjöll Ultra
    
    
		
Skilmálar
I. ALMENNIR SKILMÁLAR
        
            - Þessir skilmálar gilda á milli þátttakanda og mótshaldara og felur skráning í mótið í sér samþykki þátttakanda við því að hlíta skilmálunum.
- Mótshaldari ber ekki ábyrgð á heilsu þátttakenda í mótum á vegum þess, á meðan móti 
        stendur né í tengslum við það. Þá ábyrgist mótshaldari eða starfsmenn þess og samstarfaðilar 
        ekki tjón, hvorki líkamlegt né fjárhagslegt, sem þátttakendur verða fyrir vegna þátttöku.
- Mótshaldara er heimilt að endurskoða eða breyta skilmálum þessum vegna ófyrirsjáanlegra 
        ástæðna, s.s. náttúruhamfara eða veðurs. Verði breytingar á skilmálum verða þær tilkynntar til þátttakenda með tölvupósti.
- Sá aðili sem skráir fleiri en sjálfan sig í mótið samþykkir að vera ábyrgur fyrir að kynna skilmála 
        fyrir þeim sem hann skráir. Ef þau hin sömu eru ekki tilbúin til að samþykkja skilmálana verður skrifleg 
        athugasemd að berast mótshaldara innan tveggja sólarhringa frá skráningu.
- Sá sem skráir sjálfan sig og aðra í mótið samþykkir að veita mótshaldara heimild til að nota 
        skráningarupplýsingar, með þeim fyrirvara að skráning eða notkun upplýsinganna sé eðlilegur þáttur í starfsemi 
        mótshaldara. Hér er átt við birtingu úrslita, almennar póstsendingar, tölvupóst og upplýsingar á heimasíðu.
- Persónuupplýsingar sem þátttakendur gefa upp verða meðhöndlaðar af fullum trúnaði og ekki miðlað til þriðja 
        aðila. Allar myndir sem teknar eru af opinberum ljósmyndurum mótsins af þátttakendum þess 
        áskilur mótshaldari sér rétt til að nota í markaðs- og kynningarefni.
- Sá sem skráir sig til þátttöku í viðburðinum áttar sig á erfiðleikastigi hlaupsins sem liggur um hálendi Íslands þar sem allra veðra von, hefur kynnt sér leiðina og tímamörk. Sá sem skráir sig til þáttöku veit að öryggi hlaupara er á þeirra eigin ábyrgð. 
- Mótshaldari gæti sent þátttakendum fáeina tölvupósta með ýmsum mikilvægum tilkynningum 
        eins og t.d. upplýsingum um viðkomandi mót, breytingar á dagskrá og skráningu. Alltaf gefst kostur á að skrá 
        sig af þeim póstlista.
II. GREIÐSLUSKILMÁLAR
        
            - Í skráningarferli er reiknivél sem birtir verð í íslenskum krónum.
- Heildarfjárhæð þátttökugjalds sem reiknivélin gefur upp er endanlegt verð.
- Þátttökugjöld fást endurgreidd að fullu fram til 40 dögum fyrir mót, eftir það er þátttökugjald ekki endurgreitt.
- Ekki er hægt að geyma þátttökugjöld fram á næsta ár.
- Ef mótið fer ekki fram vegna ófyrirsjáanlegra atburða, svo sem náttúruhamfara, veðurs o.s.frv., munu greidd þátttökugjöld í hlaupin ekki verða endurgreidd.
- Greiðsla fer í gegnum greiðslusíðu Teya - www.teya.is