Í ár
Fætur toga og Framfarir, hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupara, kynna 23. víðavangshlauparöð sína á haustdögum 2026.
Hlaupin eru þrjú og með sama sniði og undanfarin ár, hefjast kl. 10:00 á laugardagsmorgnum í september og október.
Um tvær vegalengdir er að ræða, „stutt“ og „langt“ hlaup, og hefst styttra hlaupið á undan. Stutta hlaupið er yfirleitt um 1km en það lengra 6-7km. Vegalengdirnar eru settar upp með það fyrir augum að höfða til sem flestra, bæði millivegalengda- og langhlaupara og hlaupara á öllum aldri á öllum getustigum.
Keppnisgjald hvers hlaupadags er einungis 1000 kr, og gildir hvort sem er í annað hlaupið eða bæði.
Eftirfarandi eru staðsetningar og dagsetningar víðavangshlaupa í Reykjavík haustið 2026:
- 3.október við Kjarrhólma í Kópavogi
- 10. október á Frisbígolfvellinum í Fossvogi
- 31. október við Borgarspítalann í Reykjavík
Stigakeppni er í flokkum karla og kvenna, og drengja og stúlkna 16 ára og yngri. Þáttakendur mega og eru hvattir til að taka þátt í báðum hlaupum á sama degi.
Bæði hlaup á gefnum degi gilda til stiga einstaklings í stigakeppninni.
Í ár heyr sveitakeppnin endurkomu sína með nokkuð breyttu sniði:
* Mynda má sveitir þvert á aldursflokka og kyn
* Keppt er um hæsta stigafjöldann frekar en tíma eða sæti
* 3 stigahæstu einstaklingar skráðir í hverja sveit telja á hverjum keppnisdegi
Verðlaun verða veitt fyrir stigahæstu sveitina eftir síðasta hlaup.
Nánari upplýsingar veitir Burkni Helgason, burknih@gmail.com, s. 6600078
Lögmenn Lækjargötu fá sérstakar þakkir fyrir aðkomu sína að framkvæmd hlaupanna.