The 5VH Trail Run5VH Trail Run (Fimmvörðuhálshlaup Náttúruhlaupa) verður haldið laugardaginn 10. ágúst. Hlaupið verður um Fimmvörðuháls, frá Skógum að Volcano Huts í Húsadal, 28 km.
Vefsíða: www.5vhhlaup.is
Facebook síða: facebook.com/5vhtrailrun
Staðsetning: Skógar
Tímasetning: Keppnin hefst kl. 9:00, laugardaginn 10. ágúst
Hlaupaleið: Byrjar við Skóga og endar í Volcano Huts Húsadal.
Vegalengd: 28 km
Tímamörk: 7 klst. (kl. 16:00)
Verðlaun: Verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í karla og kvennaflokkum.
Skráningargjöld verða ekki endurgreidd en hægt verður að gera nafnabreytingar til 29. júlí 2024. Skráningu lýkur 29. júlí eða þegar hlaupið er orðið fullt. Verð:
18.900 kr. til 1. janúar 2024
21.900 kr. frá 1. janúar en 5VH keppnisbolurinn er aðeins innifalinn ef skráning er framkvæmd til og með 30. júní.
Meðlimir í hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa fá afsláttarkóða upp á 15%, en enginn afsláttur er veittur eftir 30. júní. Ekki er hægt að fá afsláttinn eftir á ef greitt var fullt verð án afsláttarkóða.
Innifalið í skráningu:
Keppnisnúmer, brautarvarsla og tímataka
Drykkjarstöðvar við Baldvinsskála (13 km), Strákagil (23 km) og Volcano Huts. Vatn, íþróttadrykkur, bananar ofl.
Sturta og salernisaðstaða að hlaupi loknu í Volcano HutsStuttermabolur frá 66° Norður fylgir með skráningu til og með 30. júní
Flutningur á farangri frá Skógum í Volcano Huts
Sjúkragæsla í Volcano Huts
Ekki innifalið í skráningu:
Rútuferðir og matur að hlaupi loknu. Sendur verður póstur á þátttakendur í júlí þar sem þeim gefst kostur á að panta mat og rútuferð í forsölu.
Fylgist með á Facebook síðu hlaupsins:facebook.com/5vhtrailrun
Skipuleggjendur keppninnar: Náttúruhlaup og Arctic Running
Nánari upplýsingar fást í netfanginu 5vh@natturuhlaup.is