Enduro keppni fyrir alla krakka og unglinga 8-18 ára. Keppnin fer fram við Hvaleyrarvatn 13. september og hefst kl 11:00.
Flokkar
15 ára og eldri hjóla 5 sérleiðir.
14 ára og yngri hjóla 4 sérleiðir.
Þátttakendur í U11 þurfa að vera með forráðamann eða annan fullorðinn að hjóla með sér í gegnum keppnina.
Verðlaun
Veitt verða verðlaun í hverjum flokki ásamt sérverðlaunum fyrir hraðasta tímann á Stórhöfða.
Stórhöfða sérleiðin verður hluti af heildarkeppninni í U17 og Junior keppninni ásamt því að veitt verða sérstök verðlaun fyrir hraðasta tímann niður Stórhöfða. Þeir sem ætla að taka þátt í henni verða að vera með allan hlífðarbúnað, þ.e.a.s. bakbrynju, fullface hjálm og hnéhlífar.
Brautarskoðun
Fimmtudaginn 10. September kl. 17:30-19:00. Mæting við nýja bílastæðið við Hvaleyrarvatn.
ATH brautir gætu breyst og verður það þá auglýst sérstaklega eins tímanlega og hægt er.
?
Hér má sjá brautirnar:
Keppnisgögn
Keppnisgögn verða afhent við bílastæði vestan við Hvaleyrarvatn frá 10:00-10:45 á keppnisdag.
Gögn verða ekki afhent keppanda yngri en 18 ára nema ábyrgðaraðili taki við þeim.
Tímatökuflögu skal festa með bensli við framgaffal hjólsins.
Ungduro
Ungduro er keppnisform í fjallahjólreiðum þar sem allir hjóla saman langa leið og aðeins er keppt á merktum sérleiðum sem eru aðallega niður á móti. Keppandi stimplar sig inn í byrjun á þess konar sérleið og svo út í lok hennar. U11 – U15 hjóla 4 sérleiðir en U17 og Junior hjóla 5 sérleiðir. Samanlagður tími í öllum sérleiðum gildir til úrslita.
Skylda er að vera með góðan hjálm og hanska. Mælt er með að nota góðan hlífðarbúnað, s.s. full-face hjálm, brynju, hnéhlífar, gleraugu og annan viðeigandi búnað. Einnig þarf hjól að vera í viðunandi ástandi svo sem að deck, bremsur og handföng.
?
Öllum verður raðað í hópa eftir aldursflokkum sem hjóla saman alla leiðina og mun fullorðinn hjóla með hverjum hóp.