Bakgarðsæfing UltraForm verður haldin á Akranesi Sunnudaginn 30. Ágúst frá 10-17:00 (Ræst í síðasta hringinn 16:00)
Um er að ræða skemmtilega samæfingu þar sem hver hleypur á sínum rólega hraða og hugmyndin er að hafa gaman og spjalla við góða vini um leið og náð er inn góðri æfingu.
Fyrirkomulag:
- Hlaupin er 6.7 km hringur alltaf á heila tímanum =10:00/11:00/12:00 o.s.frv.(Hringurinn kemur inn þegar nákvæm staðsetning er komin/ákveðinn)
- Hægt er að mæta seinna og fara færri hringi eða byrja 10:00 og hætta fyrr (fara færri hringi)
- Boðið verður uppá drykkjarstöð yfir æfinguna með vatni, orkudrykk, súkkulaðistykkjum og ýmsu fleiru
- Klósett verður á staðnum, en fjöldi klósetta á eftir að koma betur í ljós
- Afhending gagna verður auglíst á næstu dögum og einnig verður hægt að sækja á staðnum rétt fyrir start
- ATH: Gott er að mæta með tjaldstól ef þið viljið fá ykkur sæti milli hringja.