Tour de Ormurinn 2024

Íslenska English

Keppnishaldari

UÍA
Kt. 660269-4369
Tjarnarási 6
700 Egilsstaðir
Gunnar / Sæbjörn
Símanr.: 471 1353
uia@uia.is

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Söluvarningur
Tour de Ormurinn 2024
Tour de Ormurinn er hjólreiðakeppni á austurlandi. 
Keppnin hóf göngu sína árið 2012 og hefur keppandafjöldi farið stigvaxandi síðan þá.
Hjólaleiðir eru þrjár. 68 km hringurinn er vinsælasta leiðin en einnig er boðið upp á 103 km hring og 26 km leið.

Keppnin er opin öllum 12 ára og eldri.  Hjólað er umhverfis Löginn í styttri hringnum en inn í botn Fljótsdals í þeim lengri. Startað er í hringina frá Egilsstöðum og 26 km leiðin hefst í Hallormsstað.
Endamark er staðsett á Egilsstöðum. Mikil áhersla er lögð á öryggismál, unnið er í góðu samstarfi við lögregluna.
Fjöldi sjálfboðaliða kemur að framkvæmd keppninnar og hafa skipuleggendur keppninnar fengið mikið hrós frá þátttakendum fyrir öfluga og sýnilega brautarvörslu.
Metnaður er lagður í að umgjörð keppninnar beri austfiskri menningu, sögu og náttúru.

Allar nánari upplýsingar um Tour de Ormurinn er að finna inn á Facebook síðu mótsins og tourdeormurinn.is.

Skráningarfrestur er til kl. 13:00, föstudaginn 16. ágúst.
verð til 29. júní Fullt verð
4.000 ISK 5.000 ISK 26 km unglingaflokkur 12 til 16 ára
5.500 ISK 6.500 ISK 26 km
8.500 ISK 10.500 ISK 68 km
8.500 ISK 10.500 ISK 103 km

Keppnisgögn verða afhent á skrifstofu UÍA, Tjarnarási 6, frá 13 til 20, föstudaginn 16. ágúst. Lokaafhending gagna verður kl. 7:30 á keppnisdag, fyrir þá sem ekki komast ekki á föstudeginum.

Upplýsingar um keppanda

Keppnisgreinar

17.08.2024