Tailwind ehf
Kt. 540122-0590
info@vikingamot.is
Reykjavík Trail 2026
Hlaupaupplifun í hjarta borgarinnar
Reykjavík Trail hefst í Elliðaárdalnum, við Rafstöðvarhúsið, þann 9. júlí 2026 og býður upp á einstaka utanvega upplifun í fallegu og fjölbreyttu umhverfi. Hér sameinast náttúra, áskorun og hlaupagleði – aðeins örfáum mínútum frá miðborg Reykjavíkur.
Leiðirnar henta bæði þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í utanvegahlaupum og þeim sem vilja takast á við meiri áskoranir.
Veldu þína leið:
5 km – Fyrir byrjendur
Stutt og skemmtileg leið fyrir þá sem vilja prófa trail í fyrsta sinn eða njóta hlaupsins á sínum hraða.
15 km – Fyrir vana hlaupara
Fjölbreytt og krefjandi leið með góðri blöndu af hraða, hækkunum og trail upplifun.
25 km – Fyrir reynda hlaupara
Lengsta og krefjandi leiðin með meiri vegalengd, meiri hækkun og alvöru áskorun.
Innifalið í skráningu:
• Hlaupanúmer
• Tímataka og úrslit
• Verðlaun fyrir efstu sæti
• Einstök stemning og öflug trail upplifun
Finndu þitt trail. Finndu þína áskorun.
Vinningar verða veittir fyrir fyrstu þrjá í hverri vegalengd, karla og kvenna. Einnig verða veitt verðlaun fyrir sigurvegara í hverjum aldursflokki karla og kvenna.
Reykjavík Trail er utanvegahlaup með misjöfnu undirlagi. Þátttakendur eru hvattir til að fara varlega og taka þátt á eigin ábyrgð.