Reykjavík Trail 2026


Til baka á skráningarsíðu

Skilmálar


Reglur og skilmálar Reykjavík Trail

A.

Reglur Reykjavík Trail byggja á leiðbeiningum ITRA um framkvæmd utanvegahlaupa. Allar vegalengdir Reykjavík Trail eru utanvegahlaup.

B.

Lengd og erfiðleikastig hlaupanna, veðurfar og náttúran gera kröfur til þátttakenda.

C.

Mótshaldari getur frestað keppni eða breytt leiðarvali ef framkvæmd keppninnar er ekki möguleg samkvæmt skipulagi.

D.

Þátttakendur ákveða sjálfir hvort þeir hlaupa þrátt fyrir þoku eða önnur slæm veðurskilyrði.

E.

Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á að kynna sér þær reglur sem gilda í Reykjavík Trail og fylgja þeim.

F.

Reglurnar snerta skráningu, öryggi og aðbúnað þátttakenda fyrir, á meðan og eftir keppni.

G.

Reglurnar eiga jafnframt að tryggja að þátttakendur og starfsmenn hugi að viðkvæmri náttúru, að leiðarval taki tillit til gróðurfars og merktra gönguleiða og að rusl eða úrgangur sé ekki skilinn eftir.

1. Skráning

Við skráningu í Reykjavík Trail þurfa þátttakendur að haka við að þeir samþykki skilmála mótsins. Ef ekki er hakað við samþykki fyrir skilmálum er ekki hægt að skrá sig í mótið.

Með skráningu staðfesti ég eftirfarandi:

2. Skilmálar sem þátttakendur þurfa að samþykkja við afhendingu gagna

  • Ég er í nægilega góðu ástandi, bæði líkamlega og andlega, til að taka þátt og ljúka hlaupinu.
  • Ég staðfesti að ég hafi áttað mig á erfiðleikastigi keppninnar.
  • Ég hef kynnt mér þau tímamörk sem gilda í keppninni fyrir ræsingu hennar og veit að allir sem ekki ná tímamörkum verða stöðvaðir án undanþágu.
  • Ég hef lesið og skil reglur Reykjavík Trail og samþykki þær.

3. Hlaupaleiðir Reykjavík Trail

Hlaupaleiðir Reykjavík Trail liggja um fjölbreytt náttúrusvæði í og við Elliðaárdal og nærliggjandi útivistarsvæði.

  • Óheimilt er með öllu að kasta frá sér rusli á leiðinni og algjört bann er við losun mannlegs úrgangs utan salernis.
  • Keppendur skulu vera með sín eigin glös eða brúsa til notkunar á drykkjarstöðvum. Ekki verður boðið upp á einnota pappaglös.

4. Keppnisreglur

Þátttakendur tryggja að þeir séu líkamlega og andlega hæfir og hafi nægan undirbúning að baki til að hlaupa það hlaup sem þeir hafa skráð sig í, innan tilskilinna tímamarka.

Ég skil að hlutverk skipuleggjenda og starfsmanna hlaupsins felst ekki í að bjarga þátttakendum sem eru ekki nægjanlega vel undirbúnir hvað varðar hlaupaþjálfun, næringu eða viðeigandi útbúnað.

Öryggi hvers hlaupara er á hans eigin ábyrgð og hann þarf að hafa færni til að takast á við óvæntar aðstæður.

Ég samþykki að fara eftir þeim leiðbeiningum sem starfsmenn hlaupsins leggja til og þigg þá aðstoð sem þeir telja nauðsynlega vegna öryggis míns og annarra.

Sem þátttakandi í Reykjavík Trail afsala ég mér öllum rétti til skaðabóta frá skipuleggjendum viðburðarins, starfsmönnum og samstarfsaðilum vegna meiðsla, veikinda, slysa eða annarra ófyrirsjáanlegra atvika sem ég kann að verða fyrir í tengslum við þátttöku mína.

Þátttakendur skulu fylgja fyrirmælum um fatnað og búnað og hafa meðferðis viðeigandi búnað samkvæmt búnaðarlista.

Þátttakendur þurfa að hafa hlaupanúmer sýnilegt framan á sér til að auðvelda skráningu og tryggja að starfsmenn geti auðkennt þá.

Til að fá skráðan tíma og í öryggisskyni skulu allir þátttakendur fara yfir tímatökumottur í rásmarki, á tékkpunktum og í endamarki.

Þátttakendur sem neyðast til að hætta í hlaupinu vegna veikinda eða meiðsla skulu tilkynna það tafarlaust til starfsmanna eða svæðisstjóra.

Óheimilt er að þiggja utanaðkomandi aðstoð frá aðilum sem ekki eru skráðir þátttakendur, nema í neyðartilvikum.

Þátttakendur skulu ekki hlaupa með utanaðkomandi hlaupurum og bera sjálfir ábyrgð á sínum eigin búnaði, drykkjarmálum og rusli.

Þátttakendur mega aðstoða aðra þátttakendur með öryggi sitt og annarra að leiðarljósi.

Mótshaldari getur vísað frá keppni hverjum þeim sem fara ekki eftir reglum hlaupsins.

5. Viðurlög

Þátttakendur sem ekki fara eftir reglum mótsins eiga á hættu að verða dæmdir úr keppni.

Þeir sem ekki fara eftir fyrirmælum geta orðið ábyrgir fyrir þeim kostnaði sem hlýst af leit og/eða umönnun björgunarsveita eða annarra starfsmanna.

6. Réttur skipuleggjenda Reykjavík Trail

Skipuleggjendur bera ekki ábyrgð á utanaðkomandi áhrifum á þátttakendur, svo sem veðri, náttúruhamförum, umferð fólks eða farartækja eða öðru ófyrirséðu.

Skipuleggjendur geta afskráð eða stöðvað þátttakanda sem er ekki með nauðsynlegan búnað eða viðeigandi fatnað miðað við aðstæður.

Skipuleggjendur geta afskráð og vísað úr mótinu hverjum þeim sem skapar hættu fyrir sjálfan sig eða aðra eða fer ekki eftir reglum keppninnar.

Skipuleggjendur bera ekki ábyrgð á veikindum eða slysum þátttakenda til og frá mótsstað eða meðan á móti stendur.

Þátttakendur eru hvattir til að leita aðstoðar starfsmanna ef veikindi eða slys koma upp. Þrátt fyrir aðstoð starfsmanna eru þátttakendur ávallt á eigin ábyrgð.

Skipuleggjendur áskilja sér rétt til að aflýsa mótinu eða breyta því með stuttum fyrirvara vegna veðurs eða annarra ófyrirsjáanlegra aðstæðna sem geta skapað hættu fyrir þátttakendur.

7. Kærur

Þátttakendur sem telja að á sér hafi verið brotið geta lagt fram kæru til mótshaldara.

Kæra þarf að berast skriflega til keppnisstjóra á meðan mótið stendur yfir.

Kæra vegna heildarúrslita í karla- og kvennaflokki þarf að berast eigi síðar en kl. 20:00 daginn eftir mótsdag.


8. Lög og varnarþing

Skilmála þessa skal túlka samkvæmt íslenskum lögum. Komi upp ágreiningur eða ef aðili telur sig eiga kröfu á hendur Tailwind ehf. vegna Reykjavík Trail, sem er skipulagt af Víkingamótunum (kt. 540122-0590), Lyngás 14, 210 Garðabæ, skal slíkur ágreiningur eða krafa rekin fyrir íslenskum dómstólum.