UltraForm ehf.
Kt. 560320-1160
Maríubaugi 103
113 Reykjavík
sala@ultraform.is
Rauðavatn Ultra er nýtt hlaup sem haldið verður í fyrsta sinn laugardaginn 9. Ágúst 2025. Hlaupið er 90 % götuhlaup og 10 % utanvegahlaup. Hlaupið er Íslandsmeistaramót í 100 km hlaupi og samhliða því er keppt í 3/6/12 og 24 klst hlaupum.
3/9/12 og 24 klst gefa ITRA stig og eru er því viðurkennd sem forhlaup fyrir Laugavegshlaupið sem dæmi.
Athugið að tímamörk eru í öllum vegalengdum, sjá lista hér fyrir neðan.
- 3 klst = 3 klst / 6 klst = 6 klst / 12 klst = 12 klst / 24 klst = 24 klst
- 100 km = 16 klst
Skráning fer fram á netskraning.is. Fyrst um sinn verður lagt upp með 50 skráningar í 3 og 6 klst og 25 skráningar í 12-24 og 100 km hlaupin. Skráningargjöld eru eftirfarandi:
Skráning er opin til miðnættis föstudaginn 8. Ágúst.
Nafnabreytingar og endurgreiðsla
Endurgreiðsla og nafnabreyting er í boði til miðvikudaginn 6. ágúst - senda póst á ultraform@ultraform.is. (nöfn, kennitölur, töluvupósta og símanúmer).
Ekki hægt að nafnabreyta frá og með miðvikudaginn 6. ágúst.
Hlaupanúmerin verða afhent Sportvörum 2-3 dögum fyrir hlaup (nánari dagsetning kemur fljótlega) og á Rauðavatni frá 8:00 á hlaupdag.
Hlaupið verður ræst hjá Rauðavatni í Reykjavík (fyrir neðan Morgunblaðshúsið).
Rástímar verða sennilega (ekki kominn endanlegur tími), en nákvæmari tímasetningar verða tilkynntar síðar:
Ein drykkjarstöð verður á Rauðavatni þar sem hlaupið byrjar og þar verðurr einnig hvíldarstöð aðeins neðar nær vatninu.
Hlaupin er Rauðavatnshringurinn sem telur ca. 3.10 km og hann er hlaupin gegnum allt hlaupið.
Athugið að hlaupið byrjar og endar ekki á sama stað fyrir 100 km en í 3/6/12 og 24 klst verða merkingar í braut þar sem hlauparar enda þegar hlaupið er blásið af.