Neshlaupið 2026

Íslenska English

Keppnishaldari

Trimmklúbbur Seltjarnarness
Kt. 5210002010
Suðurströnd 8
170 Seltjarnarnes

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Neshlaupið 2026 verður haldið laugardaginn 9. maí. Hlaupið verður ræst kl 11:00 við Sundlaug Seltjarnarness. Trimmklúbbur Seltjarnarness (TKS), heldur þennan árlega viðburð nú í 38. skipti.

Vegalengdir

Í boði eru þrjár vegalengdir:

3,25 km skemmtiskokk, án flokkaskiptingar en með tímatöku (flögur).

7,5 km hlaupaleið, einn Neshringur með tímatöku (flögur).

15 km hlaupaleið, tveir Neshringir með tímatöku (flögur) millitími gefinn.

Skráning og afhending hlaupagagna

Forsrkráningu lýkur að miðnætti 7. maí en þá hækkar skráningargjaldið og eru þátttakendur því hvattir til að forskrá sig tímanlega. Einnig er unnt að skrá sig á staðnum en skráningu líkur kl. 10 á hlaupadag. Afhending á hlaupagögnum fer fram í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi á milli kl. 17-19:00 föstudaginn 8. maí og á hlaupadag milli kl. 9 - 10:45.

Þátttökugjald

2.900 kr. fyrir fullorðna (16 ára og eldri f. 2010 og fyrr) en hækkar í 3.600 kr. eftir miðnætti 7. maí.

Ókeypis fyrir börn og ungmenni (15 ára og yngri f. 2011 eða síðar, miðað er við grunnskólaaldur)

Hlaupaleið

Rásmarkið og endamarkið er við Sundlaug Seltjarnarness í öllum vegalengdum. Í lengri vegalengdunum er hlaupið eftir göngu/hjólastígnum hringinn um nesið. Frá Suðurströnd eftir Bakkagranda, út fyrir golfvöll í Suðurnesi, með Kotagranda að Snoppu, síðan Norðurströnd heim að endamarki við sundlaug. Í 3,25 km hlaupinu er hlaupið eftir Suðurströnd og beygt inn Lindarbraut og Norðurstönd til baka þar til beygt er í átt að sundlaug að nýju.


Flokkaskipting

Keppt er bæði í karla- og kvennaflokki í hverri vegalengd.

Annað

Hlaupið er fjölskylduvæn skemmtun þar sem allir geta fundið sér vegalengd við hæfi. Drykkjarstöð er á miðri leið fyrir 15 km. Þátttökuverðlaun og hressing að loknu hlaupi. Fjölmargir spennandi útdráttarvinningar.

Upplýsingar um keppanda



Keppnisgreinar

09.05.2026