Mývatnshringurinn 2025
Skilmálar
Mývatnsstofa áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum fyrirvaralaust.
- Mývatnsstofa ber ekki ábyrgð á heilsu þátttakenda í Mývatnshringnum né Laxárhringnum, hvorki á meðan keppninni stendur né í tengslum við hana. Þá ábyrgist Mývatnsstofa eða starfsfólk þess, sjálfboðaliðar og samstarfsaðilar ekki tjón, hvorki líkamlegt, andlegt né fjárhagslegt, sem þátttakendur verða fyrir vegna þátttöku í keppninni.
- Þátttökugjöld í Mývatnshringnum og Laxárhringnum eru ekki endurgreidd en hægt er að gera nafnabreytingu á skráningu á meðan rafræn skráning er opin. Ekki er hægt að geyma þátttökugjöld keppna fram á næsta ár.
- Ef Mývatnshringurinn eða Laxárhringurinn fer ekki fram vegna ófyrirsjáanlegra atburða, svo sem náttúruhamfara, veðurs o.s.frv., munu greidd þátttökugjöld í keppnina ekki verða endurgreidd.
- Allir þátttakendur í Mývatnshringnum og Laxárhringnum eru á eigin ábyrgð. Börn eru á ábyrgð foreldra. Keppnisbrautin er ekki lokuð umferð og því mikilvægt að sýna aðgát.
- Þátttakendur skulu sýna öðrum keppendum og starfsfólki tillitsemi, og fylgja almennum umferðarreglum.