Hring-keppnisbraut um stórbrotið landslag Hellisheiðar. Hjólað er um slóða, stíga, árfarveg og línuvegi Landsnets . Boðið er upp á þrjá flokka; rafhjólaflokk, keppnisflokk (ekki opinn rafmagnshjólum) og skemmtiflokk (opin fyrir öll hjól) sem er hugsaður fyrir þau sem vilja „njóta en ekki þjóta“.
Landsnet MTB 23 KM Flokkur 1: Rafhjólaflokkur • Sunnudagur 24. september 2023 • ræsing kl. 13:30 • eingöngu fyrir rafhjól • tímataka • skráningargjald 6.900 kr. Innifalið í mótsgjaldi er þátttökumedalía og matur og drykkur að keppni lokinni.
Landsnet MTB 23 KM Flokkur 2: Keppnisflokkur • Sunnudagur 24. september 2023 • ræsing kl. 13:35 • þessi flokkur er EKKI fyrir rafhjól • tímataka • skráningargjald 6.900 kr. Innifalið í mótsgjaldi er þátttökumedalía og matur og drykkur að keppni lokinni.
Landsnet MTB 23 KM Flokkur 3: Skemmtiflokkur • Sunnudagur 24. september 2023 • ræsing 13:55 • öll hjól velkomin • þátttökumedalía fyrir alla • Engin tímataka • skráningargjald við afhendingu gagna: • skráningargjald 6.900 kr. Innifalið í mótsgjaldi er þátttökumedalía og matur og drykkur að keppni lokinni.
Fyrirvarar: • Mótstjórn áskilur sér rétt á því að breyta brautinni fram að keppni. • Mótstjórn áskilur sér einnig rétt til að stytta brautina ef veður eða aðrar aðstæður á keppnisdegi kalla á styttri keppni. • Mótstjórn áskilur sér rétt á að breyta tímasetningu ef veður eða aðrar aðstæður á fyrirhuguðum keppnisdegi kalla á slíkt. • Ákvarðanir um breytingar eru teknar með öryggi og upplifun þátttakenda að leiðarljósi.