Hlaupasería Hlaupahóps FH og 66°N 2024


Skilmálar


I. ALMENNIR SKILMÁLAR

  1. Þessir skilmálar gilda á milli þátttakanda og mótshaldara og felur skráning í mótið í sér samþykki þátttakanda við því að hlíta skilmálunum.
  2. Mótshaldari ber ekki ábyrgð á heilsu þátttakenda í mótum á vegum þess, á meðan móti stendur né í tengslum við það. Þá ábyrgist mótshaldari eða starfsmenn þess og samstarfaðilar ekki tjón, hvorki líkamlegt né fjárhagslegt, sem þátttakendur verða fyrir vegna þátttöku.
  3. Mótshaldara er heimilt að endurskoða eða breyta skilmálum þessum vegna ófyrirsjáanlegra ástæðna, s.s. náttúruhamfara eða veðurs. Verði breytingar á skilmálum verða þær tilkynntar til þátttakenda með tölvupósti.
  4. Sá aðili sem skráir fleiri en sjálfan sig í mótið samþykkir að vera ábyrgur fyrir að kynna skilmála fyrir þeim sem hann skráir. Ef þau hin sömu eru ekki tilbúin til að samþykkja skilmálana verður skrifleg athugasemd að berast mótshaldara innan tveggja sólarhringa frá skráningu.
  5. Sá sem skráir sjálfan sig og aðra í mótið samþykkir að veita mótshaldara heimild til að nota skráningarupplýsingar, með þeim fyrirvara að skráning eða notkun upplýsinganna sé eðlilegur þáttur í starfsemi mótshaldara. Hér er átt við birtingu úrslita, almennar póstsendingar, tölvupóst og upplýsingar á heimasíðu.
  6. Persónuupplýsingar sem þátttakendur gefa upp verða meðhöndlaðar af fullum trúnaði og ekki miðlað til þriðja aðila. Allar myndir sem teknar eru af opinberum ljósmyndurum mótsins af þátttakendum þess áskilur mótshaldari sér rétt til að nota í markaðs- og kynningarefni.
  7. Mótshaldari gæti sent þátttakendum fáeina tölvupósta með ýmsum mikilvægum tilkynningum eins og t.d. upplýsingum um viðkomandi mót, breytingar á dagskrá og skráningu. Alltaf gefst kostur á að skrá sig af þeim póstlista.
  8. Tímatökuflögur verða afhentar í íþróttahúsinu á Strandgötu á hlaupadegi milli kl.17:30 - 18:45.

II. GREIÐSLUSKILMÁLAR

  1. Í skráningarferli er reiknivél sem birtir verð í íslenskum krónum.
  2. Heildarfjárhæð þátttökugjalds sem reiknivélin gefur upp er endanlegt verð.
  3. Þátttökugjöld eru ekki endurgreidd.
  4. Ekki er hægt að geyma þátttökugjöld fram á næsta ár.
  5. Ef mótið fer ekki fram vegna ófyrirsjáanlegra atburða, svo sem náttúruhamfara, veðurs o.s.frv., munu greidd þátttökugjöld í hlaupin ekki verða endurgreidd.
  6. Greiðsla fer í gegnum örugga greiðslusíðu hjá Borgun

III. Mótshaldari

  1. Mótshaldari: Frjálsíþróttadeild F.H. (Hlaupahópur F.H.)
  2. Kt. 681189-1229
  3. Heimilisfang: Kaplakrika, 220 Hafnarfirði
  4. Tengiliður: Guðrún Bergsteinsdóttir
  5. Netfang: gbergsteins@gmail.com
  6. Símanúmer: 824-9707
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Varnarþing Frjálsíþróttadeldar F.H. er í Hafnarfirði. Rísi upp mál vegna skráningar eða þátttöku skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.