Hjartadagshlaupið 2024


Keppnishaldari

Hjartavernd
Kt. 600705-0590
Holtasmári 1
201 Kópavogur
Rannveig Ásgeirsdóttir verkefnastjóri
rannveig@hjartamidstodin.is

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning
Hjartadagshlaupið - Við eigum aðeins eitt hjarta, höldum því hraustu!
Hjartadagshlaupið fer fram laugardaginn 21. september kl. 10.

Í boði eru tvær tímamældar vegalengdir, 5 km og 10 km. Ræst er kl. 10:00 í báðar vegalengdir inn á Kópavogsvelli en hlaupið er út Kársnes og til baka í mark inn á Kópavogsvöll. Drykkjarstöð verður á miðri hlaupaleið og eftir 5 km og við endamark. Hlaupaleiðin hefur fengið löglega mælingu.
Niðurstöður eftir hlaupið má finna á timataka.is

Verðlaun fyrir fyrsta karl og fyrstu konu í hlaupunum tveimur og vegleg útdráttarverðlaun.
Verðlaunaafhending fer fram strax að hlaupi loknu.

Skráning og þátttökugjald
Skráning í hlaupið hefst 1. maí og lýkur fimmtudaginn 19. september kl. 23:00.
Skráning fer eingöngu fram hér á netskraning.is. Ekki er hægt að skrá sig á staðnum.
ATH: Einungis 400 númer verða í boði

10 km hlaup kostar 5.000 kr
5 km hlaup kostar 3.000 kr
Börn 15 ára og yngri fá frítt í hlaupið.

Innifalið í þátttöku er miði í sund í sundlaugum Kópavogs

Hlaupagögn verða afhent í versluninni Hlaupár í Fákafeni 11. ATH að ekki verður hægt að sækja keppnisgögn á hlaupdag.
Hægt er að sækja keppnisgögn í Hlaupár frá 10. september fram til 20. september á milli klukkan 11 og 18.

ÞÁTTTAKENDUR ERU HVATTIR TIL AÐ KLÆÐAST RAUÐU.

Hjartadagshlaupið er haldið í tilefni Alþjóðlegs hjartadags sem haldinn er í yfir 120 löndum á hverju ári. Markmið Hjartadagsins, er að auka vitund og þekkingu almennings á ógnum hjarta- og æðasjúkdóma og leggja áherslu á heilbrigða lífshætti svo að börn, unglingar og fullorðnir um allan heim öðlist betra og lengra líf.

Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

21.09.2024