Haustmaraþon Félags maraþonhlaupara fer fram laugardaginn 25. október 2025Félag maraþonhlaupara hefur í yfir 20 ár haldið vor- og haustmaraþon og hafa þessi hlaup fyrir löngu skipað sér fastan sess og njóta sívaxandi vinsælda. Reynt hefur verið að skapa hlýja og afslappaða stemningu í kringum hlaupin. Leiðin liggur í fallegu umhverfi eftir helstu stígum borgarinnar eins fjarri allri bílaumferð og frekast er unnt. Boðið er upp á tvær vegalengdir heilt og hálft maraþon. (
Sjá kort af hlaupaleið).
Hægt verður að nálgast keppnisgögn í verslun Sport24 í Garðabæ frá og með mánudeginum 20. október. Keppnisgögn eru einnig afhent við rásmarkið fyrir hlaup. Vinsamlegast mætið tímalega.
Maraþonið hefst kl. 9:00.
Hálfmaraþonið hefst kl. 11:00
Keppendur í maraþoni þurfa að ljúka fyrri hring á innan við 2:30. Keppendur sem klára á lakari tíma og kjósa að hlaupa áfram gera það á eigin vegum.
Forskráningu lýkur um miðnætti föstudaginn 24. október.
Sjá nánari upplýsingar um hlaupið á vefnum
marathonhlaup.is.
Hlaupaleiðin er löglega mæld.