Tindur hjólreiðafélag og Icebike Adventures halda Enduro Festival 2026 í Reykjadal Trailcenter laugardaginn 12. september. Viðburðurinn er opinn öllum fjallahjólurum og þeim sem vilja byrja en hafa ekki fundið stað og stund til að prófa.
Innan þessa festivals verður bikarmót í Enduro (í analog og rafhjólaflokki) en þennan dag er lögð áhersla á að hjóla leiðir dagsins án tímatökuflögu, kynnast samfélaginu, gefa fimmur og deila hlátrasköllum eins og enginn sé morgundagurinn.
Icebike verður með heitt á könnunni og tilboð á leigu á hjólum og útvegar aðstöðu á meðan viðburði stendur. Þátttakendur í viðburðinum fá aðgengi að drykkjarstöð og grill og guðaveigar í lok viðburðar. Eftir formlega keppni verða svo útdráttarverðlaun og skemmtiþrautir sem allir geta spreytt sig á.
Tindur og Icebike Adventures hlakka til að sjá þig laugardaginn 12. september í Reykjadal Trailcenter!