Fjölskylduhlaup TM og FRÍ 2025
Skilmálar
I. ALMENNIR SKILMÁLAR
- Þessir skilmálar gilda á milli þátttakanda og mótshaldara og felur skráning í mótið í sér samþykki þátttakanda við því að hlíta skilmálunum.
- Mótshaldari ber ekki ábyrgð á heilsu þátttakenda í mótum á vegum þess, á meðan móti
stendur né í tengslum við það. Þá ábyrgist mótshaldari eða starfsmenn þess og samstarfaðilar
ekki tjón, hvorki líkamlegt né fjárhagslegt, sem þátttakendur verða fyrir vegna þátttöku.
- Mótshaldara er heimilt að endurskoða eða breyta skilmálum þessum vegna ófyrirsjáanlegra
ástæðna, s.s. náttúruhamfara eða veðurs. Verði breytingar á skilmálum verða þær tilkynntar til þátttakenda með tölvupósti.
- Sá aðili sem skráir fleiri en sjálfan sig í mótið samþykkir að vera ábyrgur fyrir að kynna skilmála
fyrir þeim sem hann skráir. Ef þau hin sömu eru ekki tilbúin til að samþykkja skilmálana verður skrifleg
athugasemd að berast mótshaldara innan tveggja sólarhringa frá skráningu.
- Sá sem skráir sjálfan sig og aðra í mótið samþykkir að veita mótshaldara heimild til að nota
skráningarupplýsingar, með þeim fyrirvara að skráning eða notkun upplýsinganna sé eðlilegur þáttur í starfsemi
mótshaldara. Hér er átt við birtingu úrslita, almennar póstsendingar, tölvupóst og upplýsingar á heimasíðu.
- Persónuupplýsingar sem þátttakendur gefa upp verða meðhöndlaðar af fullum trúnaði og ekki miðlað til þriðja
aðila. Allar myndir sem teknar eru af opinberum ljósmyndurum mótsins af þátttakendum þess
áskilur mótshaldari sér rétt til að nota í markaðs- og kynningarefni.
- Mótshaldari gæti sent þátttakendum fáeina tölvupósta með ýmsum mikilvægum tilkynningum
eins og t.d. upplýsingum um viðkomandi mót, breytingar á dagskrá og skráningu. Alltaf gefst kostur á að skrá
sig af þeim póstlista.