Fjölskylduhlaup TM og FRÍ 2025


Keppnishaldari

Frjálsíþróttasamband Íslands
Kt. 560169-6719
fri@fri.is

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Frjálsíþrótta­sam­band Íslands og TM munu halda fjöl­skyldu­hlaup sunnudaginn 7. september á Akureyri. 

FRÍ og TM hafa sett saman fallega fjölskylduleið sem börn og fjölskyldur geta hlaupið saman og gert sér glaðan dag.

Fjölskylduleiðin er um 1800 m hringur á við Háskólann á Akureyri og Glerána. 

Þátttaka stendur öllum til boða og er gjaldfrjáls. Mikilvægt er að skrá börnin til þátttöku, en ekki þarf að skrá þann fullorðna sem hleypur með þeim.

Öll börn fá þátttökuglaðning eftir hlaup.

Aðstaða fyrir hlaup verður í húsnæði Háskólans á Akureyri og verður upphitun að svæðinu þar fyrir framan.

Hlaupið verður svo ræst á göngustíg framan við Borgir. Hlaupið niður göngustíginn, yfir aðkeyrsluna að HA og inn á göngustíg sem liggur meðfram Glerá. Honum fylgt upp á hæðina og þar er hlaupið yfir gras á frisbígolfvelli, inn í Klettagerði, götunni fylgt út í enda og beygt niður Háskólastíginn og endað á sama stað og var byrjað.

VÆB strákarnir mæta á svæðið og taka nokkur lög og stýra upphitun. Upphitunin hefst klukkan 11.

Hlaupið hefst svo klukkan 11:15.

Forskráningu lýkur klukkan 18:00 þann 5. september, eða þegar hámarksfjöldi skráninga er náð, en hámarksfjöldi skráninga er 500 börn.

Hægt verður að sækja hlaupanúmer í ?? sem staðsett er á ???, frá og með mánudeginum 1. september og til og með föstudeginum 5. september. Opnunartími ? er...

Hvetjum öll til að sækja númerin sín fyrir hlaupið - athugið að nóg er að börnin fái hlaupanúmer.

Einnig verður hægt að sækja númer í Háskólanum á Akureyri á hlaupdag.

Upplýsingar um keppanda

Keppnisgreinar

07.09.2025