Fjarðarhjólið 2024


Skilmálar


I. ALMENNIR SKILMÁLAR

  1. Þessir skilmálar gilda á milli þátttakanda og mótshaldara og felur skráning í mótið í sér samþykki þátttakanda við því að hlíta skilmálunum.
  2. Mótshaldari ber ekki ábyrgð á heilsu þátttakenda í mótum á vegum þess, á meðan móti stendur né í tengslum við það. Þá ábyrgist mótshaldari eða starfsmenn þess og samstarfaðilar ekki tjón, hvorki líkamlegt né fjárhagslegt, sem þátttakendur verða fyrir vegna þátttöku.
  3. Mótshaldara er heimilt að endurskoða eða breyta skilmálum þessum vegna ófyrirsjáanlegra ástæðna, s.s. náttúruhamfara eða veðurs. Verði breytingar á skilmálum verða þær tilkynntar til þátttakenda með tölvupósti.
  4. Sá aðili sem skráir fleiri en sjálfan sig í mótið samþykkir að vera ábyrgur fyrir að kynna skilmála fyrir þeim sem hann skráir. Ef þau hin sömu eru ekki tilbúin til að samþykkja skilmálana verður skrifleg athugasemd að berast mótshaldara innan tveggja sólarhringa frá skráningu.
  5. Sá sem skráir sjálfan sig og aðra í mótið samþykkir að veita mótshaldara heimild til að nota skráningarupplýsingar, með þeim fyrirvara að skráning eða notkun upplýsinganna sé eðlilegur þáttur í starfsemi mótshaldara. Hér er átt við birtingu úrslita, almennar póstsendingar, tölvupóst og upplýsingar á heimasíðu.
  6. Persónuupplýsingar sem þátttakendur gefa upp verða meðhöndlaðar af fullum trúnaði og ekki miðlað til þriðja aðila. Allar myndir sem teknar eru af opinberum ljósmyndurum mótsins af þátttakendum þess áskilur mótshaldari sér rétt til að nota í markaðs- og kynningarefni.
  7. Mótshaldari gæti sent þátttakendum fáeina tölvupósta með ýmsum mikilvægum tilkynningum eins og t.d. upplýsingum um viðkomandi mót, breytingar á dagskrá og skráningu. Alltaf gefst kostur á að skrá sig af þeim póstlista.

Reglur og skilmálar Fjarðarhjólsins

A: Reglur Fjarðarhjólsins byggja á leiðbeiningum HRÍ um framkvæmd hjólreiðakeppna.
B: Lengd og erfiðleikastig Fjarðarhjóls keppninnar, veðurfar og náttúran gerir kröfur til þátttakenda.
C: Mótshaldari getur fresta keppni eða breytt leiðarvali ef framkvæmd keppninnar er ekki möguleg samkvæmt skipulagi.
D: Þátttakendur ákveða hvort þeir hjóla þrátt fyrir þoku eða önnur slæm veðurskilyrði.
E: Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á að kynna sér þær reglur sem gilda í Fjarðarhjóls keppninni og fylgja þeim.
F: Reglurnar snerta skráningu, öryggi og aðbúnað þátttakenda fyrir, á meðan og eftir keppni.
G: Þá eiga reglurnar að tryggja að þátttakendur og starfsmenn hugi að viðkvæmri náttúru, leiðarval taki tillit til gróðurfars, merktra gönguleiða og að rusl og úrgangur sé ekki skilinn eftir.

1. Skráning

Við skráningu í Fjarðarhjólið þurfa þátttakendur að haka við að þeir samþykki skilamála mótsins. Ef ekki er hakað við samþykki fyrir skilmálum er ekki hægt að skrá sig í mótið.

Með undirritun minni staðfesti ég eftirfarandi:

2. Skilmálar sem þátttakendur þurfa að undirrita við afhendingu gagna

Ég er í nægilega góðu ástandi bæði líkamlega og andlega til að taka þátt í og ljúka keppni.
Ég staðfesti að ég hef áttað mig á erfiðleikastigi keppninnar.
Ég hef kynnt mér tímamörk sem gilda í keppninni fyrir ræsingu keppninnar. Ég veit að allir þeir sem ekki ná tímamörkum verða stöðvaðir (án undanþágu).
Ég hef lesið og skil reglur Fjarðarhjóls keppninnar og samþykki þær.

3. Keppnisreglur

Þátttakendur tryggja að þeir séu líkamlega og andlega hæfir og með nægan undirbúning að baki til að hjóla þá vegalengd sem þeir hafa skráð sig í.
Ég skil að hlutverk framkvæmdaaðila og starfsmanna mótsins felst ekki í að „bjarga“ þátttakendum sem ekki eru nægjanlega vel undirbúnir m.t.t. þjálfunar, næringu eða hvort þá vanti viðeigandi útbúnað.
Öryggi hvers keppanda er á hans eigin ábyrgð og hann þarf að hafa færni til að takast á við óvæntar aðstæður.
Ég samþykki að fara eftir þeim leiðbeiningum sem starfsmenn keppninnar leggja til og þigg þá aðstoð sem þeir álíta að þurfi vegna öryggis míns og annarra.
Sem þátttakandi í Fjarðarhjóls keppninni afsala ég mér öllum rétti til skaðabóta frá skipuleggjendum Fjarðarhjóls keppninnar, starfsmönnum og öðrum samstarfsaðilum keppninnar, vegna meiðsla, veikinda, slyss, eða annarra ófyrirsjáanlegra atvika sem ég gæti orðið fyrir í keppninni.
Þátttakendur þurfa að hafa keppnisnúmer sýnileg á hjólinu til þess að auðvelda og flýta skráningu og til að starfsmenn viti hverja á að þjónusta. 
Þátttakendur sem neyðast til að hætta í keppninni á miðri leið vegna veikinda eða meiðsla, er skylt að gefa sig fram við svæðisstjóra mótsins á hverjum stað. Óheimilt er að þiggja utanaðkomandi aðstoð einhvers sem ekki er skráður þátttakandi í keppninni nema í neyðartilvikum.
Það er á ábyrgð hvers þátttakanda að neita utanaðkomandi aðstoð nema um neyðartilvik sé að ræða.Það er á ábyrgð hvers þátttakanda að hjóla ekki með utanaðkomandi hjólara.
Hver og einn þátttakandi ber ábyrgð á sínu rusl og drykkjarmálum.
Þátttakendur skulu taka tillit til annarra þátttakenda. Þátttakendur mega aðstoða aðra þátttakendur með öryggi sitt og annarra í huga.
Mótshaldari getur vísað frá keppni hverjum þeim sem fara ekki eftir reglum keppninnar.

4. Viðurlög

Þátttakendur sem ekki fara eftir reglum mótsins eiga á hættu að verða skráðir úr keppni.
Þeir sem ekki fara eftir settum fyrirmælum verða ábyrgir fyrir þeim kostnaði sem til fellur við leit og/eða umönnun björgunarsveita og annarra starfsmanna.

5. Réttur skipuleggjenda Landsnets

Skipuleggjendur eru ekki ábyrgir fyrir utanaðkomandi áhrifum á keppendur. Það á við um veður, náttúruhamfarir, umferð fólks og farartækja eða annað óvænt sem getur haft áhrif á þátttakendur.
Skipuleggjendur geta afskráð og stöðvað þátttakanda sem ekki er í fatnaði eða hefur yfir að ráða nauðsynlegum búnaði sem hæfir aðstæðum.
Skipuleggjendur geta afskráð og vísað úr mótinu hverjum þeim sem skapar hættu fyrir sjálfan sig og/eða aðra eða fer ekki eftir reglum keppninnar.
Skipuleggjendur eru ekki ábyrgir fyrir veikindum eða slysum þátttakenda, til og frá mótsstað og meðan á móti stendur.
Þátttakendur eru hvattir til að leita aðstoðar starfsmanna keppninnar ef slys eða veikindi koma upp.Þátttakendur eru alltaf á eigin ábyrgð þrátt fyrir að þeir þiggi aðstoð starfsmanna keppninnar.
Skipuleggjendur áskilja sér rétt til að aflýsa mótinu með stuttum fyrirvara vegna veðurs eða annarra ófyrirsjáanlegra ástæðna sem geta skapað hættu fyrir þátttakendur.

6. KÆRUR

Þátttakendur sem telja að á sér hafi verið brotið geta lagt fram kæru til mótshaldara. Kæra þarf að berast skriflega til keppnisstjóra á meðan mótið stendur yfir.
Kæra vegna heildarúrslita í karla- og kvenna flokki þarf að berast í síðasta lagi kl. 20:00 á mótsdag.

7. GREIÐSLUSKILMÁLAR

  1. Í skráningarferli er reiknivél sem birtir verð í íslenskum krónum.
  2. Heildarfjárhæð þátttökugjalds sem reiknivélin gefur upp er endanlegt verð.
  3. Þátttökugjöld fæst ekki endurgreitt.
  4. Ekki er hægt að geyma þátttökugjöld fram á næsta ár.
  5. Ef mótið fer ekki fram vegna ófyrirsjáanlegra atburða, svo sem náttúruhamfara, covid, veðurs o.s.frv., mun mótshaldari endurgreiða 50% af þátttökugjöldum.
  6. Greiðsla fer í gegnum greiðslusíðu Valitors