Fjarðarhjólið
ATH ef ekki verða skráðir 40 keppendur alls 30.ágúst munum við ekki halda Fjarðarhjólið.
Fjarðarhjólið verður haldið laugardaginn 5. september á Ólafsfirði. Fjarðarhjólið er
rafhjólakeppni í krefjandi braut auk þess sem í boði er
skemmtihjól sem allir geta tekið þátt í óháð hvernig hjól eru notuð. Barnahjólið er svo á sínum stað, hlökkum til að sjá ykkur.
Eins og venja er með Fjarðargönguna þá verður fyrst og fremst hrikalega gaman hjá okkur í Fjarðarhjólinu! Flott umgjörð, tónlist, drykkjarstöð, veitingar eftir keppni, úrdráttarverðlaun, allir fá þátttöku verðlaun, en fyrst og fremst höfum við gaman!
Hér má sjá brautina fyrir RafhjólakeppninaHér má sjá brautina fyrir Skemmtihjólið
Vegalengdir í Fjarðarhjólinu:
22 km, (5x4,4km) RAFHJÓL, karlar og konur 17 ára og eldri, 6.900 kr. hækkar í 10.000 kr. 31.ágúst.
8,8 km, (2X4,4km) RAFHJÓL, karlar og konur, 12 ára og eldri, 4.900 kr. hækkar í 7.500 kr. 31.ágúst.
18km, skemmtihjól fyrir alla, hjólað kringum Ólafsfjarðarvatn, 4.000 kr. hækkar í 5.000 kr. 31.ágúst.
Barnahjólið 10 ára og yngri, þrautabraut, 1.000 kr. til 31.ágúst.
Drög að dagskrá laugardaginn 5. sept:
9-10:30 Afhending mótsgagna (staðsetning nánar auglýst síðar)
10:30 Barnahjólið
11:00 Rafhjólaflokkur ræstur 22 km
11:01 Rafhjólaflokkur ræstur 8,8 km
11:02 Skemmtihjól 18km
Verðlaunaafhending strax að keppni lokinni.