Dyrfjallahlaup 2024


Skilmálar Dyrfjallahlaupsins


1. Almennar reglur Dyrfjallahlaupsins
Dyrfjallahlaupið er utanvegahlaup og er haldið af Ungmennafélagi Borgarfjarðar (UMFB), Borgarfirði eystra. Keppendur skuldbinda sig með skráningu þessari til að fara eftir keppnisreglum Dyrfjallahlaupsins og staðfesta jafnframt að vera bæði í nægilega góðu líkamlegu og andlegu ástandi til þess að taka þátt í Dyrfjallahlaupinu, að þeir hafi kynnt sér reglur og skilmála hlaupsins,samþykki að fara eftir þeim og fylgja leiðbeiningum starfsmanna hlaupsins. Keppendur taka þátt á eigin ábyrgð og með því að kaupa þátttökumiða í Dyrfjallahlaupið, afsala keppendur sér öllum rétti til að krefjast skaðabóta frá Dyrfjallahlaupinu, UMFB eða samstarfsaðilum hlaupsinsvegna meiðsla, veikinda eða slysa sem aðilar gætu orðið fyrir vegna þátttöku í hlaupinu eða öðrum tengdum viðburðum

2. Endurgreiðslur
Ef svo ólíklega vill til að fella þurfi hlaupið niður fyrirfram hefur mótshaldari heimild til að halda eftir allt að 50% af gjaldinu til að mæta kostnaði við mótshaldið.
Ef hlaupið er fært til á sama degi eða til næsta dags verður þátttökugjaldið ekki endurgreitt.
Ef hlaupinu er aflýst daginn sem að keppnin á að fara fram vegna veðurs eða af öðrum  óviðráðanlegum ytri aðstæðum, verður þátttökugjaldið ekki endurgreitt.
Ef ákveðið er að halda hlaupið á öðrum stað á sama tíma, eða að keppni verði hætt og hún haldin síðar, eða ef hún er flutt á annan stað á öðrum tíma eða hún stytt, verður þátttökugjald ekki endurgreitt.
Ferða og uppihaldskostnaður verður ekki endugreiddur vegna veikinda keppenda eða ef keppni er aflýst.
Hægt er að sækja um endurgreiðslu fyrir miðakaupum 30 dögum fyrir keppnisdag en eftir þá dagsetningu er ekki hægt að sækja um endurgreiðslu. Hins vegar er hægt að gera nafnabreytingar á miðanum fram að keppnisdegi einstaklingi að kostnaðarlausu. 

3. Myndataka og persónuvernd.
Í öllum keppnum Dyrfjallahlaupsins eru ljósmyndarar á keppnissvæðinu, í brautum sem og á viðburðum hlaupsins. Myndirnar gætu verið notaðar í markaðslegum tilgangi s.s.í auglýsingum og markaðsherferðum. Við skráningu samþykkir keppandi að myndir og kvikmyndir af viðkomandi úr keppninni eða tengdum viðburðum séu settar á heimasíðu hlaupsins, samfélagsmiðla og aðra miðla mótshaldara og hverskonar útgáfur og markaðsefni, jafnvel af þriðja aðila samkvæmt samningi við hlaupiðog önnur lög og reglur.
Fjölmiðlar, blaðamenn og aðrir aðilar geta líka notað ljósmyndir og kvikmyndir Dyrfjallahlaupsins.
Við skráningu veitir keppandi samþykki sitt fyrir því að nafn viðkomandi verði skráð í listum yfir þátttakendur, ráslistum og úrslitum. Þessi gögn eru gerð opinber og aðgengileg í leitarhæfu formi. Þessir listar geta innihaldið upplýsingar um aldur og félag viðkomandi, sem og árangur í hlaupinu.
Persónuupplýsingar eru geymdar í gagnageymslu hlaupsins í samræmi við lög og reglur um persónuvernd.