Íslandsmót í Cyclocross


Keppnishaldari

Hjólreiðafélag Reykjavíkur
Kt. 430194-2089
Engjavegi 6
Reykjavík
hfr@hfr.is

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Hjólreiðafélag Reykjavíkur heldur Íslandsmót í cyclocross í Gufunesi þann 17. október. Rétt til þátttöku á bikarmótum og íslandsmótum hafa fullgildir meðlimir í viðurkenndu hjólreiðafélagi eða hjólreiðadeildar innan vébanda ÍSÍ (skráð í umsjónarkerfi ÍSÍ). Þátttakendur vinsamlegast lesið allan textann að neðan.

Skráning

Skráningu lýkur fimmtudaginn 15. október kl. 23:59. Ekki verður hægt að skrá sig í keppni eftir þann tíma, og standa þarf skil á keppnisgjöldum fyrir þann tíma.

Afhending gagna fyrir keppni fer fram við rásmark frá kl 13:00.

Keppnisgjald

Verð fyrir Junior og yngri er 3.000 kr

Verð fyrir aðra er 5.000 kr

Athugið að keppendur sjá sjálfir um leigu á tímatökuflögu. Hægt er að ganga frá leigu á flögu á netskraning.is/flogur.

Reglur

Keppendur eru beðnir um að kynna sér keppnisreglur HRÍ og þá sérstaklega kaflann sem snýr að keppni í cyclocross (kafli 6). Mótshaldari tekur fram að hringunarreglu verður ekki framfylgt í þessu móti. UCI reglur um dekkjabreidd gilda ekki í þessu móti, sjá kaflann um búnað að neðan. Keppni hefst stundvíslega á neðangreindum tímum. 

Athugið að aldursflokkar í þessari mótaröð miðast við aldur keppenda á árinu 2027. 

Dagskrá

  • 12:00 Braut tilbúin til æfinga
  • 13:00 Afhending gagna hefst
  • 13:45 Keppnisfundur yngri flokka
  • 14:00 Ræsing í KK-KVK U17 ca 40 mín í braut
  • 14:05 Ræsing í KK-KVK-U15 og yngri ca 35 mín í braut
  • 14:05 Ræsing í KK-KVK-U15 og yngri 35 mín í braut
  • 14:40 Keppni í ofangreidnum flokkum lokið og braut lokað
  • 14:45 Keppnisfundur fyrir eldri flokka
  • 15:00 Ræsing í KK-A ca 60 mín í braut
  • 15:00 Ræsing í KK-B ca 60 mín í braut
  • 15:10 Ræsing í KVK-A ca 50 mín í braut
  • 15:10 Ræsing í KVK-B ca 50 mín í braut
  • 15:20 Ræsing í Junior KVK – KK ca 45 mín í braut
  • 16:00 Keppni lýkur og braut lokað

Keppnisbraut

Keppnisbrautin verður í Gufunesi og eru fyrstu drög að henni sýnd á mynd. Mótshaldari áskilur sér rétt til breytinga, en brautin verður tilbúin kl 12:00 á keppnisdag. Um er að ræða um 2km braut, með blönduð yfirborði, svo sem gras, möl, malbik og mold. Keppendur eru beðnir um að virða þau tilmæli frá staðarhaldara að fara varlega um svæðið fyrir keppnisdag, þar sem leiksvæði barna er á svæðinu. Athugið að í endamarki verður klukka þar sem keppendur sjá hversu mikill tími er eftir af keppninni. 


Búnaður

A, B, U23 - Öll hjól með hrútastýri eru leyfð, og allar dekkjabreiddir heimilar. Óheimilt er að hafa bretti, standara eða annan óþarfa búnað á hjólinu sem kann að valda keppendum skaða. 

Junior og yngri, C flokkur - Öll hjól leyfð, en þó er óheimilt að hafa opna stýrisenda eða horn á stýri, bretti, standara eða annan búnað á hjólinu sem kann að valda keppendum skaða.


Upplýsingar um keppanda

Keppnisgreinar

17.10.2026

Skráningarfrestur: 15.10.2026 23:59
Verð: 3.000 ISK


Flokkur:
Skráningarfrestur: 15.10.2026 23:59
Verð: 5.000 ISK


Flokkur:
Skráningarfrestur: 15.10.2026 23:59
Verð: 5.000 ISK


Skráningarfrestur: 15.10.2026 23:59
Verð: 3.000 ISK