Bakgarður Heiðmörk


Skilmálar


Gildir frá 1. ágúst 2020.

I. ALMENNIR SKILMÁLAR

  1. Þessir skilmálar gilda á milli þátttakanda og mótshaldara og felur skráning í mótið í sér samþykki þátttakanda við því að hlíta skilmálunum.
  2. Mótshaldari ber ekki ábyrgð á heilsu þátttakenda í mótum á vegum þess, á meðan mótinu stendur né í tengslum við það. Þá ábyrgist mótshaldari eða starfsmenn þess og samstarfaðilar ekki tjón, hvorki líkamlegt né fjárhagslegt, sem þátttakendum verða fyrir vegna þátttöku í mótinu.
  3. Mótshaldara er heimilt að endurskoða eða breyta skilmálum þessum vegna ófyrirsjáanlegra ástæðna, s.s. náttúruhamfara eða veðurs. Verði breytingar á skilmálum verða þær tilkynntar til þátttakenda með tölvupósti.
  4. Sá aðili sem skráir fleiri en sjálfan sig í mótið samþykkir að vera ábyrgur fyrir að kynna skilmála mótsins fyrir þeim sem hann skráir. Ef þau hin sömu eru ekki tilbúin til að samþykkja skilmála mótsins verður skrifleg athugasemd að berast mótshaldara innan tveggja sólarhringa frá skráningu.
  5. Sá sem skráir sjálfan sig og aðra í mótið samþykkir að veita mótshaldara heimild til að nota skráningarupplýsingar, með þeim fyrirvara að skráning eða notkun upplýsinganna sé eðlilegur þáttur í starfsemi mótsin. Hér er átt við birtingu úrslita, almennar póstsendingar, tölvupóst og upplýsingar á heimasíðu hlaupsins.
  6. Persónuupplýsingar sem þátttakendur gefa upp verða meðhöndlaðar af fullum trúnaði og ekki miðlað til þriðja aðila. Allar myndir, sem teknar eru af opinberum ljósmyndurum á vegum mótshaldara, af þátttakendum í mótsins þess áskilur mótshaldari sér rétt til að nota í markaðs- og kynningarefni mótsins.
  7. Mótshaldari gæti sent þátttakendum fáeina tölvupósta með ýmsum mikilvægum tilkynningum eins og t.d. upplýsingum um viðkomandi hlaup, breytingar á dagskrá og skráningu. Alltaf gefst kostur á að skrá sig af þeim póstlista.

II. GREIÐSLUSKILMÁLAR

  1. Í skráningarferli er reiknivél sem birtir þátttökugjald í íslenskum krónum.
  2. Heildarfjárhæð þátttökugjalds sem reiknivélin gefur upp er endanlegt verð. Enginn virðisaukaskattur er lagður á þá fjárhæð.
  3. Þátttökugjöld eru ekki endurgreidd en hægt er að óska eftir nafnabreytingu fram að ákveðinni dagssetningu.
  4. Ekki er hægt að geyma þátttökugjöld fram á næsta ár.
  5. Ef mótið fer ekki fram vegna ófyrirsjáanlegra atburða, svo sem náttúruhamfara, veðurs o.s.frv., munu greidd þátttökugjöld ekki verða endurgreidd.