Bakgarður Náttúruhlaupa Heiðmörk

Íslenska English

Bakgarður Náttúruhlaupa - Heiðmörk
Bakgarður Náttúruhlaupa í Heiðmörk (Iceland Backyard Ultra) verður haldinn í fimmta sinn laugardaginn 21. september. Keppnin verður hefðbundið bakgarðshlaup og fer eftir ákveðinni uppsetningu og reglum (http://backyardultra.com/rules/). Hlaupin verður 6,7km hringur á hverjum klukkutíma. Sá sem hleypur flesta hringi er sá eini sem klárar hlaupið og stendur uppi sem sigurvegari. Til að klára hlaupið verður viðkomandi að klára síðasta hringinn einn. Allir hringir verða ræstir á heila tímanum og er mikilvægt að koma sér á ráslínu tímanlega fyrir hvern hring.

Hvað eru bakgarðshlaup (Backyard Ultra)?
Bakgarðshlaup eru tegund ofurhlaupa þar sem þátttakendur verða að hlaupa 6706m (4,167 mílur) á innan við klukkutíma. Hver hringur byrjar alltaf á heila tímanum. Eftir hvern hring má nota tímann sem er eftir af klukkutímanum til að hvílast og undirbúa sig fyrir næsta hring. Þetta er endurtekið á klukkutíma fresti þar til aðeins einn hlaupari er eftir í brautinni og klárar síðasta hringinn einn. Heildarvegalengd hlaupara sem klárar 24 hringi (24 klukkutímar) er 100 mílur (160,8km)

Facebook síða: facebook.com/icelandbackyardultra
Staðsetning: Elliðabær, Heiðmörk
Tímasetning: Keppnin hefst kl. 9:00, laugardaginn 16. september
Hlaupaleið: 6,7km hringur í Heiðmörk, byrjar og endar við Elliðavatnsbæ
Vegalengd: Þú hleypur eins marga hringi og þú getur!
Tímamörk: Engin tímamörk nema að klára hvern 6,7km innan klukkutíma
Úrslit: Allir sem taka þátt í Bakgarðshlaupinu fá skráða fjölda hringja og vegalengdina sem þeir klára
Verðlaun: Þátttöku-/DNF viðurkenning

Góð drykkjarstöð og aðstaða fyrir hlaupara verður við Elliðavatnsbæ. Lögð verður áhersla á skemmtilega og fjöruga umgjörð allan daginn. Starfsfólk Náttúruhlaupa verða til taks allan tímann fyrir þátttakendur í hvíldartímanum. Veitingar verða í boði með reglulegu millibili. 

Skráning fer fram á Netskráning.is og opnar miðvikudaginn 19. júní kl. 12:00. 
Skráningargjöld verða ekki endurgreidd.

Hægt verður að gera nafnabreytingar á www.netskraning.is til og með 8. september.
Eftir 8. september verður hægt að greiða 2.000 kr. breytingargjald og frá 16.-18. september er breytingargjaldið 2.900 kr.
Frá 8.-18. september þarf sá sem hefur selt miðann sinn að senda póst á bakgardur@natturuhlaup.is til að tilkynna nafnabreytingu með þeim sem fær miðann með í cc. Sá sem fær miðann þarf síðan að skrá sig í hlaupið og greiðir í leiðinni breytingargjald. 

Verð:
Fullt verð 13.900 kr.

Innifalið í skráningu:
Keppnisnúmer, brautarvarsla og tímataka
Hressing og veitingar á drykkjarstöð allan tímann
Þátttökuviðurkenning

Fylgist með á Facebook síðu hlaupsins: facebook.com/icelandbackyardultra

Skipuleggjendur keppninnar: Náttúruhlaup og Arctic Running

Nánari upplýsingar fást í gegnum netfangið bakgardur@natturuhlaup.is


Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

21.09.2024