GILDI MÓTANA:

VINNÁTTA, VIRÐING – KEPPNI

Keppnirnar sem um ræðir eru bæði nýjar af nálin um leið og þær eru keppnir sem almenningur hefur keppt í fjölda ára. En það eru tvær hjólreiðakeppnir, Kia Gullhringurinn annarsvegar og Landsnet 32 hinsvegar og svo tvö utanvega hlaup og þá ber fyrst að nefna Hengil Ultra utanvega hlaupið í Hveragerði og svo nýtt hlaup sem mun opna mótaröðina en það er Eldslóðin sem fer fram í upplandi höfuðborgarinnar frá Vífilstaðavatn inn í Heiðmörk.

MANTRA MÓTANA ERU:

ALLIR KEPPA, ALLIR VINNA OG ALLIR VELKOMNIR

VÍKINGASVEITIN

Með því að keppa í einhverri vegalengd í öllum keppnunum í sumar komast keppendur í VÍKINGASVEITINA.

ÍSLANDS-VÍKINGUR

Ætli keppendur sér nafnbótina ÍSLANDS VÍKINGUR þá þurfa keppendur að klára eru 66km í Kia Gullhringnum, 28km Eldslóðanum, 25km í Hengil Ultra og svo 32km í Landsnet 32. Keppendur mega fara lengri vegalengdir en ekki styttri til að ná því að verða Íslandsvíkingur.

JÁRN-VÍKINGUR

Að komast í hóp JÁRN VÍKINGA verður hinsvegar heldur flóknara verkefni en þá er verkefnið klára eru 106km í Kia Gullhringnum, 28km Eldslóðanum, 50km í Hengil Ultra og svo 64km í Landsnet 32.

HENGILL ULTRA TRAIL

160km / 106km / 53km / 26km / 10 km / 5km / 4x26km

Mótaröðin hefst á Hengill Ultra Trail helgina 4. til 5. júní. Hengill Ultra er fyrsta hlaupið á Íslandi sem bauð keppendum uppá 100 km braut og nú er í fyrsta sinn bætt við braut upp á 100 mílur eða 160 km en það er um leið lengsta utanvega hlaup á Ísland. Hlaupið fer frá Hveragerði um gríðarlega fallega náttúru Reykjadals og Hengilssvæðisins. Keppendur geta þannig valið sex mismunandi vegalengdir og þannig eru fremstu hlauparar landsins að hlaupa á sama stað og byrjendur og nýliðar í sportinu en keppninni lýkur með grillsveislu og allsherjar bæjarhátíð í miðbæ Hveragerðis.

Myndir frá keppninni 2020

KIA GULLHRINGURINN

Ný braut kynnt á næstunni og skráning hefst í janúar 2021

LANDSNET MTB

Skráning hefst í janúar 2021

ELDSLÓÐIN

28km / 9km / 5km / 4x28km

Mótaröðinni lýkur í Heiðmerkurlandinu laugardaginn 4. September 2021 þar sem Eldslóðin er haldin en hlaupið er frá Vífilstaðasvæðinu í meðfram Vífilstaðavatni inn að Búrfellsgjá og upp að Helgafelli og hringinn í kringum það og svo sem leið liggur til baka en þetta 28km utanvegahlaup en einnig eru í boði vegalengdirnar 5km og 10km. Þá er einnig boðið upp á liðakeppni í 28km vegalengdinni.


VERÐ OG TÍMASETNINGAR

HENGILL ULTRA TRAIL - 4.-5. JÚNÍ 2021

KIA GULLHRINGURINN - 10. JÚLÍ 2021

Ný braut kynnt á næstunni og skráning hefst í janúar 2021

LANDSNET MTB - 4. SEPTEMBER 2021

Skráning hefst í janúar 2021

ELDSLÓÐIN - 5. SEPTEMBER 2021

Frekari upplýsingar á medbyr@medbyr.is