Víðavangshlaup ÍR
Reglur og skilmálar
I. REGLUR UM GÖTUHLAUP ÍR
Reglur Frjálsíþróttadeildar ÍR eru settar fram sem rammi utan um framkvæmd Gamlárshlaups ÍR og Víðavangshlaups ÍR (hér eftir götuhlaup ÍR), með það að markmiði að hlaupin gangi sem best fyrir sig og að sem flestir njóti þess að taka þátt.
Í götuhlaupum á vegum Frjálsíþróttadeildar ÍR gilda reglur alþjóðafrjálsíþróttasambandsins IAAF um götuhlaup sem sjá má á vef Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ) og reglur FRÍ um framkvæmd götuhlaupa. Reglur FRÍ gilda um Meistaramót Íslands. Til viðbótar við þær reglur gilda einnig eftirfarandi reglur Frjálsíþróttadeildar ÍR um götuhlaup á vegum félagsins.
- Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á að kynna sér þær reglur sem gilda um þátttöku í götuhlaupum ÍR og fylgja þeim eftir í einu og öllu. Brot á reglum geta ógilt þátttöku í hlaupinu.
- Allir þátttakendur sem skrá sig í götuhlaup ÍR eru á eigin ábyrgð. Börn eru á ábyrgð foreldra.
- Þátttakendur skulu kynna sér fyrirkomulag hlaupanna hverju sinni á vef ÍR, annars vegar á upplýsingasíðu Víðavangshlaupsins og hinsvegar Gamlárshlaupsins, þar sem m.a. koma fram upplýsingar um skráningu, hlaupaleið, ræs, tímatöku, aldusflokka auk verðlauna.
- Hlaupabrautir í götuhlaupum ÍR eru ekki að fullu lokaðar fyrir bílaumferð og því mikilvægt að sýna aðgát. Allir þátttakendur eiga að kynna sér skipulag á marksvæði, varðandi hraðahólf og skipulagðar útgönguleiðir.
- Þátttakendur skulu kynna sér hlaupaleiðir og eingöngu hlaupa eftir þeirri braut sem skilgreind hefur verið af hlaupahaldara. Hlaupið er á götum nema sérstaklega sé merkt að hlaupari eigi að víkja upp á gangstétt eða göngustíg, að öðru leyti skal hlaupari ávallt fylgja akvegi.
- Þátttakendur skulu hefja hlaupið á auglýstum tíma. Tímatökukerfið er eingöngu virkt á þeim tíma.
- Tímatöku lýkur 60 mínútum eftir að ræst er Víðavangshlaupi ÍR og 90 mínútur í Gamlárshlaupi ÍR. Þeir sem koma síðar í mark fá ekki skráðan tíma.
- Þátttakendur skulu hafa hlaupanúmerið sýnilegt að framan, allan tímann á meðan hlaupinu stendur. Hlaupanúmer er skráð á ákveðinn þátttakanda og gildir eingöngu fyrir þann einstakling. Frávik frá þessu ógildir tímatöku.
- Hlaupabrautin er eingöngu ætluð keppendum. Ekki er heimilt að fylgja hlaupurum gangandi, hlaupandi, á hjóli eða öðrum farartækjum. Það er á ábyrgð þátttakenda að vísa frá þeim sem vilja fylgja. Frjálsíþróttardeild ÍR áskilur sér rétt til að vísa þeim frá, sem eru á hjóli eða öðrum farartækjum á hlaupabrautinni eða nálægt hlaupandi þátttakendum.
- Þátttakendum er óheimilt að þiggja þjónustu af öðrum en starfsmönnum hlaupsins í formi matar,drykkja eða líkamslegs stuðnings nema í neyð. Þá ber að tilkynna slíkt til hlaupstjóra.
- Þátttakendum er ekki heimilt að hafa meðferðis hunda eða önnur gæludýr í hlaupinu.
- Ekki er heimilt að taka þátt í hlaupinu á vél- eða rafmagnsknúnum farartækjum, reiðhjóli, hlaupahjóli, línuskautum, hjólabretti, skíðahjólum, handdrifnu hjóli (e. hand-cycle) eða öðrum álíka búnaði.
- Þátttakendur með barnakerrur eða stafgöngustafi skulu stilla sér upp aftast í upphafi hlaups.
- Þátttakendur skulu sýna öllum starfsmönnum hlaupsins kurteisi og fara eftir leiðbeiningum og fyrirmælum þeirra.
- Þátttakendur skulu sýna öðrum hlaupurum tillitsemi og hafa í huga almennar umferðareglur.
- Þegar þátttakendur hafa lokið hlaupi er þeim ekki leyfilegt að fara aftur út á braut til þess að hlaupa með öðrum þátttakendum.
- Úrslit eru birt í á auglýstum vef auk þess sem tímar verða sendir í sms-i til hlaupara. Úrslit fyrir verðlaunasæti eru staðfest við verðlaunaafhendingu en að öðru leyti telst birting úrslita á auglýstum vef sem lögleg birting á úrslitum. Leiðréttingar á úrslitum verða að berast innan tilskilins auglýsts tíma og eru endanleg úrslit birt eigi síðar en þremur sólarhringum eftir hlaup.
- Útdráttarverðlauna verður að vitja fyrir kl. 13:00 á hlaupdag á auglýstum stað.
- Ef misræmi er á milli upplýsinga um götuhlaup ÍR á mismunandi miðlum þá gilda ávallt þær upplýsingar sem eru á vef ÍR, annars vegar á upplýsingasíðu Víðavangshlaupsins og hinsvegar Gamlárshlaupsins.
II. ALMENNIR SKILMÁLAR
- Þessir skilmálar gilda á milli þátttakanda og mótshaldara og felur skráning í mótið í sér samþykki þátttakanda við því að hlíta skilmálunum.
- Mótshaldari ber ekki ábyrgð á heilsu þátttakenda í mótum á vegum þess, á meðan móti stendur né í tengslum við það. Þá ábyrgist mótshaldari eða starfsmenn þess og samstarfaðilar ekki tjón, hvorki líkamlegt né fjárhagslegt, sem þátttakendur verða fyrir vegna þátttöku.
- Mótshaldara er heimilt að endurskoða eða breyta skilmálum þessum vegna ófyrirsjáanlegra ástæðna, s.s. náttúruhamfara eða veðurs. Verði breytingar á skilmálum verða þær tilkynntar til þátttakenda með tölvupósti.
- Sá aðili sem skráir fleiri en sjálfan sig í mótið samþykkir að vera ábyrgur fyrir að kynna skilmála fyrir þeim sem hann skráir. Ef þau hin sömu eru ekki tilbúin til að samþykkja skilmálana verður skrifleg athugasemd að berast mótshaldara innan tveggja sólarhringa frá skráningu.
- Sá sem skráir sjálfan sig og aðra í mótið samþykkir að veita mótshaldara heimild til að nota skráningarupplýsingar, með þeim fyrirvara að skráning eða notkun upplýsinganna sé eðlilegur þáttur í starfsemi mótshaldara. Hér er átt við birtingu úrslita, almennar póstsendingar, tölvupóst og upplýsingar á heimasíðu.
- Persónuupplýsingar sem þátttakendur gefa upp verða meðhöndlaðar af fullum trúnaði og ekki miðlað til þriðja aðila. Allar myndir sem teknar eru af opinberum ljósmyndurum mótsins af þátttakendum þess áskilur mótshaldari sér rétt til að nota í markaðs- og kynningarefni.
- Mótshaldari gæti sent þátttakendum fáeina tölvupósta með ýmsum mikilvægum tilkynningum eins og t.d. upplýsingum um viðkomandi mót, breytingar á dagskrá og skráningu. Alltaf gefst kostur á að skrá sig af þeim póstlista.
III. GREIÐSLUSKILMÁLAR
- Í skráningarferli er reiknivél sem birtir verð í íslenskum krónum.
- Heildarfjárhæð þátttökugjalds sem reiknivélin gefur upp er endanlegt verð.
- Þátttökugjald fæst ekki endurgreitt en hægt er að nafnbreyta skráningu þar til á deginum fyrir keppnisdag.
- Ekki er hægt að geyma þátttökugjöld fram á næsta mót.
- Ef mótið fer ekki fram vegna ófyrirsjáanlegra atburða, svo sem náttúruhamfara, veðurs o.s.frv. verða þátttökugjöld ekki endurgreidd.
- Greiðsla fer í gegnum greiðslugátt RAPYD.