Meistaramót Íslands í Víðavangshlaupum 2025


Viðburðarhaldari

Frjálsíþróttasamband Íslands
Kt. 560169-6719
Engjavegi 6
104 Reykjavík
Burkni Helgason
Símanr.: 660 0078
burknih@gmail.com

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Meistaramót Íslands í Víðavangshlaupum

Framfarir, hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupa, býður til Meistaramóts Íslands í Víðavangshlaupum. Hlaupið fer fram 18.október við tjaldsvæðið í Laugardal.

Skráningar og skráningafrestur
Skráning keppenda fer fram á netskraning.is og er hægt að skrá sig þar til klukkutíma fyrir fyrstu ræsingu.

Skráningargjald
Skráningargjald er 1500 kr. fyrir 13 ára og eldri, frítt fyrir 12 ára og yngri.

Keppnisstaður, tímaseðill og flokkar
Hlaupið fer fram 18. október við tjaldsvæðið í Laugardal 

Keppnisflokkar Vegalengd (u.þ.b.)             Ræst kl.
Piltar og stúlkur 12 ára og yngri1,5 km            10:00
Piltar og stúlkur 13-14 ára1,5 km            10:15
Piltar og stúlkur 15-17 ára4,5 km            10:30
Piltar og stúlkur 18-19 ára4,5 km            10:30
Karlar og konur 20 ára og eldri9 km            11:00


Félagsbúningar, keppnisnúmer og afhending keppnisgagna
Keppnisgögn, númer og nælur, eru afhent á keppnisstað. 
Samkvæmt reglugerð FRÍ þurfa þeir þátttakendur sem keppa á MÍ í víðavangshlaupi að vera skráðir í aðildarfélag FRÍ og keppa í félagsbúning. Þeir sem eru ekki skráðir í aðildarfélag og/eða keppa ekki í félagsbúning keppa sem gestir og geta því ekki unnið til verðlauna.

Verðlaun
Fyrstu þrír í hverjum flokki vinna til verðlauna. Auk þess eru veitt verðlaun fyrir sveitakeppni, þar sem fyrstu þrír í mark í hverjum flokki telja til sveitar.

Mótstjórn
Mótstjóri: Burkni Helgason Yfirdómari: Tilnefndur af FRÍ

Frekari upplýsingar
Burkni Helgason, burknih@gmail.com, 660-0078.

Hlaupaleiðin
Hringurinn er 1.5km að lengd, mestmegnis á grasi en að nokkru leyti á möl.
Start og mark er á miðju tjaldsvæði Reykjavíkurborgar í Laugardal og hlaupið í grasbrekkum og malarstígum þar í kring. Brautin er nokkuð hæðótt.

Kort af hlaupaleið má sjá hér: https://www.strava.com/routes/3398989562799369072 
Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

18.10.2025