Vetrarmót sleðahundaklúbbsins 2026


Keppnishaldari

Sleðahundaklúbbur Íslands
Kt. 700910-1210
Anna Marín
Símanr.: 893 1130
stjorn@sledahundar.is

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Íslandsmeistaramót Sleðahundaklúbbs Íslands fer fram á Mývatni við Fuglasafnið dagana 6. og 7. mars 2026.

  • Staðsetning getur breyst ef aðstæður kalla á það. Verður það þá tilkynnt með góðum fyrirvara.

Dagskrá föstudag: hefst kl. 11:00 og ræðst af því hvenær síðasta liðið kemur í mark hvenær skíði verða ræst.

Dagskrá laugardag: hefst kl. 10:30 með sleða. Börn og ungmenni ræst eftir að síðasta lið fullorðinna kemur í mark. Stefnt er að hefja skíðakeppni kl. 13:00 á laugardeginum.

Athugið! Nákvæmari tímasetningar verða settar inn þegar skráningu er lokið og ljóst er hvaða keppnisflokkar verða.

Aðeins ein grein er ræst í einu svo að keppendur geta keppt í fleiri greinum ef þess er óskað. Gefinn verður tími á milli greina til að skipta um hunda ef þarf.

Ath. að ekki er leyfilegt að skrá sig í fleiri en eina grein í 10 km+ flokk.

Verðskrá: 

  • Skráningagjald er 2.500 kr. 
  • Skráning í hverja grein er 2.000 kr. 
  • Börn og ungmenni keppa frítt.

Síðasti skráningadagur: 26. febrúar kl. 23:59.

Keppendur þurfa að vera búnir að greiða félagsgjöld fyrir núverandi tímabil.

  • Lágmarksskráning í keppnisgrein eru þrír til að hún fari fram, nema í unglinga- og barnaflokkum.
  • Lágmarksaldur hunda er 12 mánaða á keppnisdegi.

Ef fella þarf niður mótið af óviðráðanlegum aðstæðum er endurgreitt fyrir skráningu í hverja grein fyrir sig, en klúbburinn áskilur sér rétt til að endurgreiða ekki skráningagjaldið til að koma upp á móti útlögðum kostnaði vegna mótsins.

Vinsamlegast athugið að skíði með stálköntum eða annar búnaður sem hættulegur getur talist hundum er ekki leyfilegur í keppnum.

Spyrna (500 metra) sem er opin öllum, sleði með 1–2 hunda, verður haldin að lokinni keppni á laugardeginum. Skráning í þá grein fer fram á staðnum.

Upplýsingar um keppanda

Keppnisgreinar

06.03.2026

07.03.2026