Vestmannaeyjahlaupið 2024


Keppnishaldari

Eyjaskokk
Kt. 420818-0920
Sigmar Þröstur
Símanr.: 8953339
eyjaskokk@gmail.com

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning
Vestmannaeyjahlaupið 2024
Vestmannaeyjahlaupið verður haldið laugardaginn 7. september.

Boðið verður upp á 5 km og 10 km.

Rásmark verður við Íþróttamiðstöðina og hefjast bæði hlaupin kl. 13.

Sameiginleg upphitun hefst kl. 12:35.

Keppnisgögn eru afhent milli kl. 17-19 föstudagskvöldið 6. september í Íþróttamiðstöð Ve.

Eitt þátttökugjald 4.000 kr er í hlaupið, óháð vegalengd. Hlauparar fæddir 2007 og síðar (15 ára og yngri) fá frítt í hlaupið.

Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjá í karla og kvennaflokki í hvorri vegalengd.
Einnig verða veitt aldursflokkaverðlaun.

Keppni milli hlaupahópa
Í ár verður í fyrsta sinn keppni milli hlaupahópa.
Þegar keppandi bókar sig í hlaupið skráir hann nafn hlaupahóps sem hann vill keppa fyrir í reitinn Lið / Skokkhópur hér fyrir neðan.
Fjórir bestu tímar hlaupara í hverjum hlaupahópi telja í kvenna, karla og í blönduðum flokki.
Lágmarksfjöldi hvers hlaupahóps eru því fjórir af sama kyni eða tvær konur og tveir karlar í blandaðri sveit.

Íþróttahúsið verður opið fyrir og eftir hlaup og hægt er að fara í sund þar og er það innifalið í gjaldinu.

Fyrir þá sem koma ofan af landi þá er um að gera að bóka ferðina yfir tímalega: herjolfur.is

Allar upplýsingar um mótið eru inn á vefsíðu hlaupsins vestmannaeyjahlaup.is
Þú getur líka fylgst með á facebook

Allur ágóði af hlaupinu rennur til góðgerðarmála.

Upplýsingar veitir Sigmar Þröstur Óskarsson í síma 895-3339 eða Magnús 897-1110.

Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

07.09.2024