Vatnsendahlaup HK 2026


Keppnishaldari

Hlaupahópur HK
Kt. 630981-0269
Örvar Steingrímsson
Símanr.: 665 6217
630981-0269

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Vatnsendahlaup HK

Vatnsendahlaup HK verður haldið í þriðja sinn fimmtudaginn 10. september 2026 kl. 18:00. Hlaupið hefst við Kórinn, Vallakór 12 í Kópavogi.

Hlaupið er 10 km utanvegahlaup um fjölbreytta stíga við jaðar Heiðmerkur, þar sem hlauparar fá tækifæri til að kynnast leiðum sem fáir hafa hlaupið áður. Boðið verður upp á tímatöku og drykkjarstöð er á leiðinni.

Upplýsingar

Staðsetning: Kórinn – Vallakór 12, 203 Kópavogur
Tímasetning: Fimmtudaginn 10. september 2026 kl. 18:00
Vegalengd: 10 km
Tímataka:
ITRA: Keppendur fá ITRA-stig fyrir hlaupið.

Hlaupleið

Hlaupið hefst við Kórinn og liggur upp að Guðmundarlundi og áfram að Vatnsendaborg. Þaðan tekur við fjölbreytt leið um stíga við jaðar Heiðmerkur, niður í átt að Elliðavatni. Leiðin liggur síðan aftur upp Vatnsendahlíð og niður að Kórnum þar sem hlaupið endar.

Strava kort
Google maps kort

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir efstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki, auk útdráttarverðlauna.

Hlaupagögn

Hægt verður að sækja hlaupagögn í Hlaupár, Fákafeni 11, frá kl. 11:00–18:00 alla vikuna fyrir hlaupið.

Skráning

Skráningargjald: 3.900 kr.

Skráningargjöld eru ekki endurgreidd. Hægt verður að gera nafnabreytingar allt þar til hlaupið hefst.

Skráningu lýkur 10. september 2026 kl. 16:00, eða fyrr ef hlaupið fyllist.

Sérstakt ungmennagjald fyrir 12-20 ára er 1.500 kr.

Innifalið í skráningu

  • Keppnisnúmer
  • Tímataka
  • Brautarvarsla
  • Drykkjarstöð með Powerade, vatni, banana o.fl.
  • Salernisaðstaða fyrir og eftir hlaup í Kórnum

Fylgist með

Fylgist með fréttum og upplýsingum um hlaupið á samfélagsmiðlum:

Facebook.com/vatnsendahlaupHK

Instagram.com/vatnsendahlauphk

Skipuleggjendur

Hlaupahópur HK
Netfang: orvars@gmail.com

Hlaupastjóri: Örvar Steingrímsson
Sími: 665 6217

Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

10.09.2026

Skráningarfrestur: 10.09.2026 17:49
3.900 ISK (Fullt verð)
1.500 ISK (Verð til 10.09.2026 18:00 | 10 til 21 ára)