Trékyllisheiðin 2024


Keppnishaldari

Skíðafélag Strandamanna
Kt. 510100-2120
Víkurtúni 10
510 Hólmavík
skidafelagstrandamanna@gmail.com

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning
Trékyllisheiðin 2024

Trékyllisheiðin er utanvegahlaup sem fer fram á Ströndum í þriðja sinn laugardaginn 17. ágúst 2024. Nú bætist þriðja vegalengdin við þær tvær sem áður hafa verið í boði – og auk þess verður efnt til sérstaks ungmennahlaups í Selárdal. Skíðafélag Strandamanna stendur að hlaupinu, en Strandagöngur félagsins eru vinsæll hluti af Íslandsgöngu Skíðasambands Íslands. Bækistöðvar félagsins eru í nýlegum skíðaskála á Brandsholti í Selárdal inn af botni Steingrímsfjarðar, u.þ.b. 16 km norðan við Hólmavík. Þar enda öll hlaupin.


Valkostirnir verða sem sagt fjórir að þessu sinni:

  1. Trékyllisheiðin Ultra 48 km (úr Trékyllisvík, um 1.150 m hækkun)

  2. Trékyllisheiðin Midi 26 km (frá Djúpavík, um 950 m hækkun)

  3. Trékyllisheiðin Mini 16,5 km (af Bjarnarfjarðarhálsi, um 300 m hækkun)

  4. Trékyllisheiðin Junior 3,7 km (frá Bólstað, um 70 m hækkun)


Staðsetning

Lengsta hlaupið hefst við félagsheimilið í Árnesi í Trékyllisvík, næstlengsta hlaupið við Hótel Djúpavík í Reykjarfirði og það þriðja á Bjarnarfjarðarhálsi milli Steingrímsfjarðar og Bjarnarfjarðar. Ungmennahlaupið hefst svo við eyðibýlið Bólstað í Selárdal. Sætaferðir verða frá skíðaskálanum að rásmörkum hlaupanna og sem fyrr segir enda öll hlaupin við skíðaskálann.


Sætaferðir

Boðið er upp á sætaferðir að morgni hlaupadags frá endamarkinu í Selárdal að rásmörkum allra hlaupanna. Fargjaldið til Trékyllisvíkur er 7.000 kr/mann, 5.000 kr/mann til Djúpavíkur og 2.000 kr/mann að rásmarki á Bjarnarfjarðarhálsi. Flutningur að rásmarki ungmennahlaupsins er innifalinn í skráningargjaldi. Um fargjöld gilda sömu endurgreiðsluskilmálar og með þátttökugjöld, (sjá neðar). Þeir sem afþakka sætaferð við skráningu geta eftir sem áður pantað far með því að senda tölvupóst á Skidafelagstrandamanna@gmail.com í síðasta lagi 31. júlí 2024. Ekki er þó hægt að tryggja að nægt sætaframboð verði á þeim tíma.


Dagskrá hlaupadags

Kl. 07:30 Rútuferð frá skíðaskála í Selárdal norður í Trékyllisvík

Kl. 10:00 Start 48 km við Félagsheimilið í Árnesi

Kl. 10:00 Rútuferð frá skíðaskála í Selárdal norður í Djúpavík

Kl. 12:00 Start 26 km við Hótel Djúpavík

Kl. 12:15 Rútuferð frá skíðaskála í Selárdal upp á Bjarnarfjarðarháls

Kl. 13:00 Start 16,5 km á Bjarnarfjarðarhálsi

Kl. 13:40 Rútuferð frá skíðaskála í Selárdal yfir að Bólstað

Kl. 14:00 Start 3,7 km ungmennahlaup við Bólstað

Kl. 14:00 Von á fyrstu keppendum í mark

Kl. 15:30 Verðlaunaafhending í Selárdal (eða þegar þrjú fyrstu eru komin í mark)

Kl. 18:00 Marki lokað


Skráning

Skráning fer fram á https://netskraning.is/trekyllisheidin/. Skráningarfrestur rennur út á miðnætti að kvöldi sunnudagsins 11. ágúst. Skráning í ungmennahlaupið er þó opin fram að ræsingu hlaupsins.


Þátttökugjald (ísl. kr. (ISK))


Til 29. febrúar 2024

Til 30. júní 2024

Frá og með 1. júlí 2024

Trékyllisheiðin Ultra 48 km

11.900

13.900

15.900

Trékyllisheiðin Midi 26 km

9.900

11.900

13.900

Trékyllisheiðin Mini 16,5 km

5.900

6.900

7.900

Trékyllisheiðin Junior 3,7 km

2.000

2.000

2.000


Innifalið í þátttökugjaldi er:

  • Tímataka og númer (Tímataka verður með flögum (https://timataka.net))

  • Brautar- og öryggisgæsla

  • Drykkir og næring á drykkjarstöðvum og í marki

  • Salernisaðstaða við rásmark og í marki

  • Flutningur á farangri frá rásmarki að endamarki

  • Verðlaun fyrir 3 efstu karla og konur

  • Flutningur frá skíðaskála að Bólstað vegna ungmennahlaups


Afhending gagna

Hlaupagögn verða afhent í íþróttamiðstöðinni á Hólmavík föstudaginn 16. ágúst kl. 18:00-21:00. Mikilvægt er að sem flestir sæki gögnin sín þá. Gögn sem ekki verða sótt á föstudeginum verða afhent í skíðaskálanum, í rútum á leið að rásmarki og við rásmark.


Tímamörk

Trékyllisheiðin Ultra (48 km): 8:00 klst

Trékyllisheiðin Midi (26 km): 5:40 klst (tími Þórbergs)

Trékyllisheiðin Mini (16,5 km ): 4:00 klst


Drykkjarstöðvar

Fjórar drykkjarstöðvar verða á lengstu leiðinni, tvær á Djúpavíkurleiðinni og ein á 16,5 km leiðinni. Auk þess verður boðið upp á hressingu við endamark. Drykkjarstöðvarnar verða norðvestan við fjallið Glissu (eftir um 13 km), við Búrfellsvatn (eftir um 26 km), við Goðdalsá (eftir um 34/11 km) og við vegamótin inn af Bjarnarfjarðarhálsi (eftir um 40/17/8,5 km).


Á drykkjarstöðvunum verður a.m.k. boðið upp á vatn og orkudrykk. Engin pappa- eða plastmál verða þar til staðar, heldur verða hlauparar að koma með fjölnota glös til að geta fengið drykki.


Brautarvarsla og merkingar

Leiðin er að mestu leyti auðrötuð, þar sem hlaupið er eftir jeppaslóðum og troðnum stígum. Merkingum verður bætt við þar sem vafi getur leikið á hvert halda skuli. Einnig verður brautarvarsla á mikilvægustu stöðum, svo sem við vegamót norðan við Mela, við vegamót á Eyrarhálsi, við afleggjara inn af Bjarnarfjarðarhálsi, í brúninni ofan við Bólstað og á Geirmundarstaðavegi. Þá verður aðstoðarfólk til taks við vöðin á Goðdalsá og Selá, þar sem báðar eiga það til að vera nokkuð vatnsmiklar. Kaðall verður strekktur yfir Selá.


Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í karla- og kvennaflokkum. Auk þess verða veitt nokkur vegleg útdráttarverðlaun.


ITRA/UTMB-stig

Lengsta hlaupið gefur tvo ITRA-punkta og 26 km hlaupið gefur einn ITRA-punkt. Bæði þessi hlaup og 16,5 km hlaupið gefa ITRA-stig.


Nánari upplýsingar

Vefsíða hlaupsins er https://trekyllisheidin.com.


Enn nánari upplýsingar:

Skidafelagstrandamanna@gmail.com

Sími 893 3592 (Ragnar Bragason)

Sími 862 0538 (Stefán Gíslason)



Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

17.08.2024