Tindahlaup Mosfellsbæjar
Skilmálar
I. REGLUR
- Skilmálar varðandi skráningar, endurgreiðslur o.þ.h. má
finna á skráningarsíðu hlaupsins. Með skráningu í hlaupið samþykkja
þátttakendur skilmála hlaupsins og skuldbinda sig til að lúta reglum
þess. Þátttakendur skulu fara eftir þeim leiðbeiningum sem starfsmenn
hlaupsins leggja til, þ.m.t. tilmæli um fatnað og búnað
- Stranglega bannað er að henda frá sér rusli, fatnaði eða
búnaði á leiðinni. Hlauparar verða að vera með sín eigin glös eða brúsa
til að nota á
drykkjarstöðvum. Ekki er boðið upp á einnota pappaglös
á drykkjarstöðvum. 5 Þátttakendur skulu hafa hlaupanúmer sýnilegt
framan á sér í mittishæð til þess að auðvelda og flýta skráningu. Til að
fá skráðan tíma og í öryggisskyni skulu allir þátttakendur fara yfir
tímatökumottur í rásmarki, á tékkpunktum og í endamarki. - Sá sem skráir sjálfan sig og aðra í mótið samþykkir að veita mótshaldara heimild til að nota
skráningarupplýsingar, með þeim fyrirvara að skráning eða notkun upplýsinganna sé eðlilegur þáttur í starfsemi
mótshaldara. Hér er átt við birtingu úrslita, almennar póstsendingar, tölvupóst og upplýsingar á heimasíðu.
- Óheimilt er að þiggja utanaðkomandi aðstoð einhvers sem
ekki er skráður þátttakandi í hlaupið, nema í neyðartilvikum. Það er á
ábyrgð hvers þátttakanda að neita utanaðkomandi aðstoð nema um
neyðartilvik sé að ræða. Það er á ábyrgð hvers þátttakanda að hlaupa
ekki með utanaðkomandi hlaupara (héra). Þátttakendur mega aðstoða aðra
þátttakendur með öryggi sitt og annarra í huga.
- Viðurlög: Þátttakendur sem ekki fara eftir reglum hlaupsins eiga á hættu að verða skráðir úr hlaupinu.
- Skipuleggjendur
áskilja sér rétt til að breyta brautinni, aflýsa hlaupinu eða færa
rástíma með stuttum fyrirvara vegna veðurs eða annarra ófyrirsjáanlegra
aðstæðna með öryggi þátttakenda að leiðarljósi. Við slíkar aðstæður fæst
þátttökugjald ekki endurgreitt.
II. GREIÐSLUSKILMÁLAR
- Í skráningarferli er reiknivél sem birtir verð í íslenskum krónum.
- Heildarfjárhæð þátttökugjalds sem reiknivélin gefur upp er endanlegt verð.
- Þátttökugjöld fást ekki endurgreidd.
- Ekki er hægt að geyma þátttökugjöld fram á næsta ár.
- Ef mótið fer ekki fram vegna ófyrirsjáanlegra atburða,
svo sem náttúruhamfara, veðurs o.s.frv., munu greidd þátttökugjöld í
hlaupin ekki verða endurgreidd.
- Greiðsla fer í gegnum rekstraraðila Netskráning.is, Tímataka ehf. kt. 560318-0730.
- Hafa
skal samband við Tímataka ehf í netfangið timataka@timataka.net
varðandi mál er lúta að greiðslum og endurgreiðslubeiðnum. Afgreiðsla
slíkra beiðna getur tekið allt að tvær vikur yfir hásumarið vegna anna
við mótshald.