UMSE / Tímataka ehf.
Kt. 560318-0730
Starri Heiðmarsson
Símanr.: 6632650
thorvaldsdalsskokk@umse.is
Þorvaldsdalsskokkið, elsta skipulagða óbyggðahlaup á Íslandi, verður haldið í 33. sinn þann 4. júlí. 2026.
Líkt og undanfarin ár verða tvö hlaup og eru þau hluti af norðurhluta Landvættar.
Tímatöku lýkur 17:00
Í öryggisskyni hvetjum við alla þátttakendur til að kynna sér aðstæður vel og huga sérstaklega að veðurspá á hlaupdegi. Allir sem taka þátt eru hvattir til að hlaupa með fullhlaðinn síma með sér. Það er ekki gsm-samband á allri hlaupaleiðinni en engu að síður þá dettur það inn annað slagið og getur skipt sköpum ef mikið liggur við.
Aðalhlaupið hefst við gömlu brúna yfir Ytri-Tunguá milli Dagverðartungu og Fornhaga í Hörgárdal og lýkur við Stærri-Árskóg á Árskógsströnd.
Hlaupið hefst í marki Þorvaldsdalsskokksins við rafveituskúr nærri Stærri Árskógi. Þorvaldsdalurinn er hlaupinn suður að rásmarki Þorvaldsdalsskokksins og er það snúið við og dalurinn hlaupinn aftur til baka að rásmarkinu og endar á sama stað og það hófst.
Hlaupið hefst fyrir ofan Brattavelli á Árskógsströnd (óheimilt að fara að rásmarki á einkabílum) og lýkur við Stærri-Árskóg á Árskógsströnd.