Snæfellshlaupið 2024


Skilmálar


I. REGLUR

  1. Skilmálar varðandi skráningar, endurgreiðslur o.þ.h. má finna á skráningarsíðu hlaupsins. Með skráningu í hlaupið samþykkja þátttakendur skilmála hlaupsins og skuldbinda sig til að lúta reglum þess. Þátttakendur skulu fara eftir þeim leiðbeiningum sem starfsmenn hlaupsins leggja til, þ.m.t. tilmæli um fatnað og búnað
  2. Aldurstakmörk: Í 10 km hlaupið þarf að vera 16 ára á árinu. Í 30 km hlaupið þarf að vera 18 ára á árinu.
  3. Tímamörk: Engin tímamörk eru í 10 km hlaupinu. Tímamörk verða í 30 km hlaupinu og eru þau sett með öryggi hlauparans og skipulag brautarvörslu í huga. Til að ná tímatakmörkum verða hlauparar að vera farnir frá drykkjarstöð nr. 2 (u.þ.b 20 km og 420 m uppsöfnuð hækkun frá ræsingu) eftir 3 klukkutíma og 30 mínútur frá ræsingu. Ef hlaupari nær ekki þeim tímatakmörkum telst hann hafa lokið keppni í hlaupinu og verður boðið far niður í Snæfellsskála. Þessi regla á við um alla þátttakendur og er ekki hægt að semja við starfsmenn á staðnum um aðra kosti.
  4. Stranglega bannað er að henda frá sér rusli, fatnaði eða búnaði á leiðinni. Hlauparar verða að vera með sín eigin glös eða brúsa til að nota á
    drykkjarstöðvum. Ekki er boðið upp á einnota pappaglös á drykkjarstöðvum. 5 Þátttakendur skulu hafa hlaupanúmer sýnilegt framan á sér í mittishæð til þess að auðvelda og flýta skráningu. Til að fá skráðan tíma og í öryggisskyni skulu allir þátttakendur fara yfir tímatökumottur í rásmarki, á tékkpunktum og í endamarki.
  5. Sá sem skráir sjálfan sig og aðra í mótið samþykkir að veita mótshaldara heimild til að nota skráningarupplýsingar, með þeim fyrirvara að skráning eða notkun upplýsinganna sé eðlilegur þáttur í starfsemi mótshaldara. Hér er átt við birtingu úrslita, almennar póstsendingar, tölvupóst og upplýsingar á heimasíðu.
  6. Óheimilt er að þiggja utanaðkomandi aðstoð einhvers sem ekki er skráður þátttakandi í hlaupið, nema í neyðartilvikum. Það er á ábyrgð hvers þátttakanda að neita utanaðkomandi aðstoð nema um neyðartilvik sé að ræða. Það er á ábyrgð hvers þátttakanda að hlaupa ekki með utanaðkomandi hlaupara (héra). Þátttakendur mega aðstoða aðra þátttakendur með öryggi sitt og annarra í huga.
  7. Viðurlög: Þátttakendur sem ekki fara eftir reglum hlaupsins eiga á hættu að verða skráðir úr hlaupinu.
  8. Skipuleggjendur áskilja sér rétt til að breyta brautinni, aflýsa hlaupinu eða færa rástíma með stuttum fyrirvara vegna veðurs eða annarra ófyrirsjáanlegra aðstæðna með öryggi þátttakenda að leiðarljósi. Við slíkar aðstæður fæst þátttökugjald ekki endurgreitt.

II. GREIÐSLUSKILMÁLAR

  1. Í skráningarferli er reiknivél sem birtir verð í íslenskum krónum.
  2. Heildarfjárhæð þátttökugjalds sem reiknivélin gefur upp er endanlegt verð.
  3. Þátttökugjöld fást endurgreidd að fullu fram til 14 dögum fyrir mót, eftir það er þátttökugjald ekki endurgreitt.
  4. Ekki er hægt að geyma þátttökugjöld fram á næsta ár.
  5. Ef mótið fer ekki fram vegna ófyrirsjáanlegra atburða, svo sem náttúruhamfara, veðurs o.s.frv., munu greidd þátttökugjöld í hlaupin ekki verða endurgreidd.
  6. Greiðsla fer í gegnum rekstraraðila Netskráning.is, Tímataka ehf. kt. 560318-0730.
  7. Hafa skal samband við Tímataka ehf í netfangið timataka@timataka.net varðandi mál er lúta að greiðslum og endurgreiðslubeiðnum. Afgreiðsla slíkra beiðna getur tekið allt að tvær vikur yfir hásumarið vegna anna við mótshald.