Snæfellshlaupið 2025


Keppnishaldari

Vinir Snæfells / Tímataka ehf
Kt. 560318-0730
vinirsnaefells@gmail.com

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning
Snæfellshlaupið

Snæfellshlaupið er utanvegahlaup umhverfis Snæfell og verður haldið 19. júlí í annað skipti.

Hlaupaleiðirnar
Boðið verður uppá þrjár hlaupaleiðir um stórbrotið og fjölbreytt landslag við rætur Snæfells, hæsta fjall Íslands utan jökla.

30 km leiðin telst nokkuð krefjandi og er einungis fyrir þá hlaupara sem hafa farið í utanvegahlaup áður.

Báðar lengri vegalengdirnar hafa hlotið vottun frá ITRA og gefa ITRA stig.


2 km skemmtiskokk (100 m hækkun)

Hlaupið er ræst klukkan 11.30 við Snæfellsskála og hlaupið er eftir stikaðri leið norður melinn frá skálanum upp með læk að fossinum Bergskjá.

 

10 km - Tanna Travel Tían (450 m hækkun)
Þátttakendum er ekið frá Snæfellsskála að bílastæðinu við Sótavistir þar sem ræst er í hlaupið klukkan 13.00. Rútan fer frá Snæfellsskála kl 11.45 og gert er ráð fyrir að rútuferðin taki um það bil þrjú korter. Hlaupið er eftir stikuðum göngustíg upp í Vatnsdal þaðan í Snæfellsskála.
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 40 manns. Engar drykkjarstöðvar eru á leiðinni.


30 km (870 m hækkun)
Hlaupið er ræst kl 11.00 við Snæfellsskála og hlaupið er eftir stikuðum göngustíg rangsælis í kringum Snæfell, um Þjófadali, eftir Eyjabökkunum og þaðan um Vatnsdal og að lokum er endað aftur í Snæfellsskála. Tvær drykkjarstöðvar eru á leiðinni með um það bil 10 km millibili, við Hálsakofa og Sótavistir, þar sem boðið er uppá vatn og orkudrykki. Glös verða ekki í boði á drykkjarstöðvum heldur þurfa keppendur að vera með sín eigin drykkjarílát.

Kort af leiðinni má finna hér.


Staðsetning og gistimöguleikar
Keppendur mæti við Snæfellsskála um 30 mínútum fyrir ræsingu á lengra hlaupi og 15 mínútum fyrir brottför rútu fyrir styttra hlaupið.

Snæfellsskáli er staðsettur vestan við Snæfell í um það bil tveggja klukkutíma akstursfjarlægð frá Egilsstöðum. Vegurinn er með bundnu slitlagi langleiðina, að undanskildum seinustu 13 km sem er malarslóði og er aðeins fær jepplingum og stærri bílum.

Í Snæfellsskála er hægt að bóka gistingu, en við hann er einnig tjaldsvæði. Í um það bil 30 mín akstursfjarlægð er Laugarfell Highland Hostel þar sem keppendum beta bókað gistingu. Í Fljótsdal, í um það bil klukkutíma akstursfjarlægð, er fleiri möguleika að finna, s.s. Fljótsdalsgrund (með stóru tjaldsvæði), Óbyggðasetrið og Hengifoss Lodge. Þá eru enn fleiri möguleikar í boði á Hallormsstað og Egilsstöðum.

Skráning
Skráningu líkur á kl 17.00 18. júlí

 2 km skemmtiskokk – Þátttökugjald frítt – Ekkert aldurstakmark

10 km – Þátttökugjald 4.900 – 16 ára aldurstakmark
30 km – Þátttökugjald 9.900 – 18 ára aldurstakmark

Afhending skráningargagna verður í versluninni M-fitness, Stórhöfða 15, Reykjavík miðvikudaginn 16. júlí, kl. 11-18.

Þeir hlauparar sem ekki eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu geta sótt gögnin daginn fyrir hlaup í verslun River á Egilsstöðum, Miðvangi 6, kl 11-18.

Innifalið í þátttökugjaldi er brautarvarsla, tímataka með flögu og hressing eftir hlaup.

Verðlaun
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í karla- og kvennaflokki, ásamt útdráttarverðlauna.

Nánari upplýsingar:
Vinsamlegast hafið samband við aðstandendur hlaupsins á netfangið: vinirsnaefells@gmail.com.



Upplýsingar um keppanda


Aukaupplýsingar í neyðartilfelli
Nauðsynlegar upplýsingar fyrir mótshaldara í neyðartilfelli.

Keppnisgreinar

19.07.2025