Atwork á Íslandi ehf. í samstarfi við Ungmennaféla
Kt. 6310232660
Túnbraut 1-3
545 Skagaströnd
Friða Rún Þórðardóttir
Símanr.: 8988798
Atwork í samstarfi við Ungmennafélagið Fram
Peningaverðlaun í boði fyrir fyrstu þrjá í 5 km, 10 km og ATWORK MEGA TRAIL 13,5 km utanvegahlaupinu.
Verðlaun verða veit fyrir fyrstu þrjú sætin í hverri vegalengd og viðurkenningar í öllum flokkum.
Boðið er upp á 5 km og 10 km götuhlaup, 1 km skemmtiskokk og 13,5 km utanvegahlaupið ATWORK MEGA TRAIL. Hlaupið er FRÍ vottað, fyrir utan skemmtiskokkið.
Eftir hlaup verður boðið upp á veglegar veitingar í íþróttahúsinu og allir þátttakendur fá frítt í sund og gufu að loknu hlaupi. Einnig verður Spákonuhof og veitngarhús staðarins opin. Hægt að panta taldstæði og þar er frisbí gólfvöllur staðsettur eða hótelgistingu ásamt því að skella sér í strandblak.
ATWORK MEGA TRAIL utanvegahlaupið verður ræst frá höfninni kl. 14:00 og hlaupið sem leið liggur upp að Spákonufelli og hringinn í kringum fellið og til baka að höfninni.
5 km og 10 km hlaupið verður ræst kl 14:10 frá höfninni. Hlaupaleiðin er einn hringur um götur Skagastrandar, en tveir hringir í 10 km hlaupinu.
1 km skemmtiskokkið er kjörið fyrir yngstu hlauparana og oft hlaupa foreldrar við hlið unganna sinna og með því móti átt sameiginlega reynslu á hlaupabrautinni og búið til góðar minningar og stemmingu.
Skráning fer fram á netskraning.is, hægt er að skrá sig þar til kl. 21:00, 18. júlí. Afhending keppnisnúmera fer fram í íþróttahúsinu frá kl. 12, 19. júlí.
Ekkert aldurstakmark er í götuhlaupin en aldurstakmark er 18 ára (f. 2008) í utanvegahlaupið.
Hlaupið er skipulagt í samvinnu vð Ungmennfélagið Fram og allur ágóði rennur til þess til áframhalda uppbyggingar á miðpunkti Norðvesturlands.
Nánari upplýsingar: frida@heilsutorg.is eða Fríða Rún Þórðardóttir, sími 898 8798
Facebook: aframatwork_skagastrandahlaupið
Instagram: aframatwork_skagastrandahlaupið