I. Almennir skilmálar
- Þátttakendur taka þátt í hlaupinu á eigin ábyrgð og eiga ekki kröfurétt á framkvæmdaaðila hlaupsins vegna atburða sem verða í tengslum við hlaupið. Skráður þátttakandi er ábyrgur fyrir hlaupanúmeri og er óheimilt að láta það öðrum í té til þátttöku í hlaupinu. Sá sem hleypur með númer sem ekki er skráð á hann af mótshaldara er ekki gildur þátttakandi.
- Aldurstakmörk eru engin í Póststubbinum, 7km og 12km hlaupunum en í 26 km og 50 km er 18 ára aldurstakmark.
- Þátttakendum ber að sýna náttúrunni virðingu og ekki er heimilt að henda neinu rusli á leiðinni, nema í þar til gerð ílát á drykkjarstöðvum. Sýna ber öðrum þátttakendum, göngufólki og hestamönnum tillitssemi á leiðinni og hlýða fyrirmælum starfsfólks í hvívetna.
- Utanaðkomandi aðstoð við keppendur er óheimil, nema í neyð. Þátttakendum ber að aðstoða aðra þátttakendur í neyð þar til önnur viðeigandi hjálp berst.
- Þátttakendur bera ábyrgð á eigin búnaði og ber að klæða sig eftir veðri og veðurspá. Skyldubúnaður í lengsta hlaupinu er eftirfarandi:
- Drykkjarmál eða brúsi til að sækja vatn í læki og á drykkjarstöðvum
- Fullhlaðinn farsími
- Álteppi
- Flauta
- Húfa/buff og hanskar
- Þátttakendur skulu hafa keppnisnúmer sýnilegt allt hlaupið.
- Keppnisstjóri getur vísað þeim sem fylgja ekki settum reglum úr hlaupinu. Einnig er keppnisstjóra heimilt að stöðva hlaupið eða aflýsa því vegna utanaðkomandi aðstæðna.
II. Greiðsluskilmálar
- Í skráningarferli er reiknivél sem birtir verð í íslenskum krónum
- Heildarfjárhæð þátttökugjalds sem reiknivélin gefur upp er endanlegt verð
- Hægt er að fá 50% af þátttökugjaldinu endurgreitt til 1. júlí 2026 með því að senda póst á ragnark@postur.is.
- Ef mótshaldari þarf að aflýsa hlaupinu með stuttum fyrirvara vegna náttúruhamfara, veðurs eða annarra ófyrirsjáanlegra ástæðna verða 50% þátttökugjaldsins endurgreidd.
- Óska má eftir nafnabreytingu með því að senda póst á ragnark@postur.is.
- Greiðsa fer i gegnum örugga greiðslusíðu hjá Teya.
Með skráningu í hlaupið samþykkir þátttakandi framangreinda skilmála.