Pósthlaupið er 50 km utanvegahlaup frá Hrútafirði yfir í Búðardal (600 m hækkun). Hlaupið er haldið af Björgunarsveitinni Ósk og UMF Ólafi Pá í fjáröflunarskyni í samstarfi við Póstinn.
Í boði er einnig að hlaupa hálfa leið um 26 km, 12 km leið eða 7 km. leið sem þá er síðast spretturinn að Búðardal.
Hlaupið fer fram laugardaginn 26. júlí.
Pósthlaupið hefur verið metið af ITRA (International Trail Running
Association) og úthlutað ITRA-stigum:
Pósthlaupið er um 50 km utanvegahlaup sem hefst við Bálkastaði í
Hrútafirði. Hlaupin er gömul landpóstaleið yfir Haukadalsskarð vestur í
Haukadal og sem leið liggur niður dalinn, meðfram Haukadalsvatni, niður á
reiðstíg við Vestfjarðaveg í Dölum og eftir honum og Vestfjarðavegi alla leið í
Búðardal.
Meðan á hlaupinu stendur geta yngsta kynslóðin og áhangendur hennar
skottast Póststubbinn, stuttan hring í hjarta Búðardals, og þegið
veitingar og glaðning þegar komið er í mark.
Sætaferðir verða úr Búðardal að rásmörkum við Bálkastaði, Kirkjufellsrétt,
malarnámuna og Búðardalsflugvöll. Á leiðinni verður boðið upp á drykkjarstöðvar
og brautargæslu. Í marki verður boðið upp á hollar veitingar úr héraði.
Kort og hæðarkort
Kort af leiðinni er neðst á þessari síðu. Sjá líka hér fyrir neðan.
Sætaferðir
Sætaferðir verða að morgni hlaupadags úr Búðardal að rásmörkum við
Bálkastaði, Kirkjufellsrétt, malarnámuna og Búðardalsflugvöll. Þeir sem afþakka
sætaferðina við skráningu geta þó pantað far með því að senda tölvupóst á ragnark@postur.is, í síðasta lagi 21. júlí 2026 (ef enn eru laus sæti).
Skráning fer fram á netskraning.is sjá hér fyrir ofan.
Hægt verður
að skrá sig til kl. 12:00 föstudaginn 24. júlí. Þátttökugjöld eru eftirfarandi:
Hinn 4. júlí 2026 hækka gjöldin í 11.000 kr, 8.000 kr, 6.000 kr. og 4.000
kr.
Innifalið í þátttökugjaldi er:
·
50 km kl. 9:00 frá Bálkastöðum í Hrútafirði
o Rúta fer frá Íþróttmiðstöðinni í Búðardal kl. 7:45
·
26 km kl. 11:30 frá Kirkjufellsrétt í Haukadal
o Rúta fer frá Íþróttamiðstöðinni í Búðardal kl. 10:30
·
12 km kl. 12:30 frá Malarnámunni í Haukadal
o Rúta fer frá Íþróttamiðstöðinni í Búðardal kl. 11.45
·
7 km kl. 13:30 frá Búðardalsflugvelli á Kambsnesi.
o Rúta fer frá Íþróttamiðstöðinni í Búðardal kl. 13:00
·
Póststubburinn hefst við MS í Búðardal kl. 12:30
Rúta flytur hlaupara að startinu
við Bálkastaði, Kirkjufellsrétt, Malarnámu og Búðardalsflugvelli (kl. 7:45,
10:30, 11:45, 12:00). Að loknu hlaupi verður hlaupurum boðið upp á holla og
góða hressingu úr héraði. Nánari upplýsingar er að finna á Facebook-síðu hlaupsins.
Afhending keppnisgagna er kl. 11-18 fimmtudaginn 23. júlí og föstudaginn 24.
júlí í versluninni Hlaupár, Fákafeni 11 í Reykjavík, og á keppnisdag, 25. júlí í Íþróttamiðstöðinni í Búðardal.
Athugið að skráningu í hlaupið lýkur kl. 12:00 föstudaginn 24. júlí eða
fyrr ef selst upp í einstakar vegalengdir.
Drykkjarstöðvar verða við virkjun í Ormsá (8 km), efst í Haukadalsskarði
(15 km), við Kirkjufellsrétt (24 km), við Haukadalsvatn (37 km) og á Breiðamel
(46 km). Síðustu tvær drykkjarstöðvarnar þjóna einnig hlaupurum sem ætla 26 km.
Hlauparar í öllum vegalengdum geta fengið sér hressingu við Breiðamel áður en
þeir rúlla síðasta spölinn heim í Búðardal.
Á drykkjarstöðvunum verður boðið upp á vatn og orkudrykk. Hlauparar koma
með eigin mál eða brúsa undir drykki þar sem ekki verða í boði einnota mál. Við
endamarkið við Nýja Íþróttamiðstöðina í Búðardal verður veitt hressing úr
héraði.
Brautargæsla: Auðvelt er að rata alla leið þar sem hlaupið er eftir jeppaslóða framan af og fjallvegi síðari hlutann þar til komið er niður að þjóðvegi. Þá er farið eftir reiðvegi sem liggur meðfram þjóðveginum. Síðasti spölurinn liggur um Búðardal. Merkingum verður komið fyrir þar sem hætt er við að einhver geti villst og brautarvarsla verður við vegamót. Á leiðinni eru margir lækir sem ekki eru farartálmar fyrir hlaupara. Á einum stað þurfa 50 km hlauparar að vaða Haukadalsá og þar verður aðstoðarfólk til taks.
Verðlaun og úrdrádráttarverðlaun:
verðlaun verða viett fyrir þrjú efstu sætin í karla- og kvennaflokkum í hverri
vegalengd, auk úrdráttarvinninga.
Sundlaug: Ný sundlaug er í Búðardal.
Myndir og myndbönd:
Vinsamlegast athugið að myndir og myndbönd verða tekin á viðburðinum fyrir
markaðsefni Póstsins
Nánari upplýsingar: Facebook-síða
hlaupsins er Pósthlaupið. Nánari upplýsingar veitir
hlaupstjóri, Ragnar Kristinsson (ragnark@postur.is), sími
825 1084.