Nýárshlaup UltraForm er skemmtileg áskorun (sunnudaginn 3. desember) sem hugsuð er fyrir alla hlaupara þar sem hlaupin er 7 km hringur frá UltraForm (Gylfaflöt 10 í Grafarvogi) og keppendur stjórna hraða og ákefð í hverjum hring og eins hversu marga hringi þau taka eða allt að 6 hringi sem samsvarar 42,2 km. Hægt er að fara 7-14-21.1 - 28 - 35 eða 42,2 km. Það má taka eins langa pásu og hlaupari vill eftir hvern hring, passa þarf ekki að stíga á tímatökumottuna
ATH það verða engir brautaverðir en þarf 2x að fara yfir götuna - förum varlega
Afhending hlaupagagna:
Þriðjudaginn 29.desember milli 11:00-12:30 og svo 15-17:30 í Ultraform Gylfaflöt 10
og á hlaupadag (sunnudaginn 3. Desember frá 08:00-08:45 í Ultraform Gylfaflöt 10 (ath sýnum tillitsemi - hlaupanúmerin verða ekki afhend eftir kl 8:45 á hlaupadag)
Hvetjum alla sem hafa tök á því að sækja á þriðjudaginn = Má sækja fyrir aðra
Hlaupaleið:
Leiðin sem hlaupin er er rétt rúmir 7 km (7.1 km) þar sem hlaupið er á gangstíg hring í Grafarvoginum. Það eru tvö gatnamót sem þarf að fara yfir (eftir ca. 1.4 km og svo ca. 6 km) og þar biðjum við fólk um að fara varlega og taka mið að umferð. Nánari lýsing á hlaupahring má finna á facebook viðburði og kemur hér inn mjög fljótlega. Hlaupaleiðin verðum merkt í öllum beygjum en við hvetjum fólk til að skoða leiðina vel og hafa hana í úrinu til að fyrirbyggja rangar beygjur í hlaupinu.
Skráning, nafnabreytingar og endurgreiðslur:
Skráning í hlaupið lokar 2.jan kl 11:00 - engar undantekingar gerðar
Engar endurgreiðslur - má nafnabreyta fram að hlaupi
Tímataka og Drykkjarstöð:
Hlaupið hefst klukkan 09:00 - allir ræsa á sama tíma. Hver hringur byrjar og endar í Gylfaflöt 10 þar sem Drykkjarstöð er aðgengileg fyrir hlaupara og þar getur fólk nært sig, fyllt á brúsa og hvílt sig smá fyrir næsta hring. Tímataka verður stillt á þá vegu að það er tekin tími á hlaupurum inní hvern hring, tími sem tekur að hlaupa hringinn og tími í pásu milli hringja.
Start:
Gylfaflöt 10. Við byrjum svo öll að hlaupa saman 09:00 og það verður í boði að hlaupa til 14:00.
Næring og drykkir á drykkjarstöð:
Á drykkjarstöð verður boðið uppá flottar veitingar á borð við orkudrykk, vatn, orkustykki, kaffi, kakó og meira til.
Má koma með sína næringu
Verðlaun:
Þar sem hlaupið er hugsað meira sem samæfing en keppnishlaup þá verða ekki verðlaun í þetta skiptið.