Vertu með í ævintýrinu!Keppnin hefst 9. apríl kl. 22:00 í báðum vegalengdum. Gengið verður inn í kvöldið og nóttina. Slökkt verður á lýsingunni á skíðasvæðinu, en þátttakendur ganga með sín eigin ennisljós.
Keppnisfyrirkomulag er þannig að um einstaklingskeppni er að ræða. Hægt er að velja á milli þess að ganga 70 km eða 35 km. [Áður var gangan parakeppni, en frá 2025 er hún einstaklingskeppni.]
Keppt er með frjálsri aðferð, þ.e.a.s. fólk ræður hvort það gengur hefðbundið eða skautar. Einnig má skipta um aðferð ef fólk vill, en vinsamlegast hafið bara eitt par af skíðum (og öðrum búnaði) fyrir hvora aðferð. Hægt er að láta ferja aukabúnaðinn upp í farangurshólfið við brautina (sjá hér að neðan).
Þátttakendur sjá sjálfir um sína drykki og annað nesti. Farangurinn verður fluttur á sleða frá startinu og í farangurshólf við brautina í 7,25 km hringnum. Þar getur fólk svo stoppað til að næra sig (eða skipta á milli skauta- og hefðbundins búnaðar) þegar þurfa þykir. Að keppni lokinni verður farnagurinn svo aftur ferjaður niður á marksvæðið, en þó gæti mögulega þurft að bíða svolítið eftir þeim flutningi.
Nánari upplysingar og keppnisreglur:
NæturFossavatnið 70 km
NæturFossavatnið 35 km