Mt. Esja Ultra

Íslenska English

Keppnishaldari

Mt. Esja Ultra
Kt. 500622-1990
Mt. Esja Ultra
https://www.facebook.com/MtEsjaUltra

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Mt. Esja Ultra

Mt. Esja Ultra fjallahlaupaveislan verður haldin í fimmtánda sinn laugardaginn 13. júní 2026.


Skráning hefst 2. febrúar kl. 12:00

Í tilefni 15 ára afmælis hlaupsins verður keppt í 15 klst. hlaupi og Mt. Esja hálfmaraþoninu, ásamt ævintýrahlaupi fyrir börn.
Mt. Esja Ultra Maraþonið verður aftur á dagskrá 2027. 

MT. ESJA ULTRA Í 15 ÁR - 15 TÍMA KEPPNI!

Hversu oft klukkar þú Steininn á 15 klst.?


Hlaupaleiðin (hringurinn) verður sú gamla klassíska: Lúppan um Skógræktina, upp vinstra meginn að Steini og niður hægra meginn.  

Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin hjá körlum og konum (þau sem fara flestar ferðir á 15klst.). Sigurvegarar í karla- og kvennaflokki fá hinn margrómaða verðlaunagrip ESJUSTEININN, sem er handgerður af steinsmiðnum Þóri Sigmundssyni og eru steinarnir sérvaldir í hlíðum Esjunnar. 


Einnig verða veitt verðlaun fyrir þau (konu og karl) sem eru fyrst með 5 ferðir og 10 ferðir. ATH. sami aðili (karl og kona) getur verið fljótastur með 5 og 10 ferðir og farið lengst. 


Keppendur fá skráðan fjölda ferða ásamt tíma (ath. aðeins marktíma). Tímar fyrir 5, 10 og 15 ferðir verða skráðir á ITRA (ath. sú vegalengd sem keppandi fer lengst (5, 10 eða 15)).


Þegar keppnistímanum er lokið (15 klst.) og tveir eða fleiri keppendur hafa farið lengst og lokið jafnmörgum ferðum, sigrar sá sem var fyrstur með síðustu ferðina (hringinn). Þannig að tíminn í markinu eftir síðustu ferðina gildir en ekki staðsetning/vegalengd á keppnisleiðinni eftir 15 klst. 


Keppendum er frjálst að ljúka keppni þegar þeir vilja en verða að fara 5 ferðir til að fá ekki DNF. 


Keppnin hefst kl. 8:00 þann 13. júní og lýkur kl. 23:00 (15 klst.). 

ATH. takmarkað pláss er í 15 klst. keppnina! 



MT. ESJA HÁLFT MARAÞON


Hálfmaraþonið verður haldið í þriðja sinn í ár. Leiðin er um 21 km með 1.500 m samanlagðri hækkun. Hlaupið hefst við Esjustofu og verður farin vel útfærð og skemmtileg útsýnisleið um Esjurætur og -hlíðar. Tilvalin æfingakeppni fyrir lengri utanvega- og fjallahlaup t.d. Laugavegshlaupið.


Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin hjá körlum og konum. Sigurvegarar í hálfu maraþoni fá að auki í verðlaun hinn margrómaða verðlaunagrip ESJUSTEININN, sem er handgerður af steinsmiðnum Þóri Sigmundssyni og eru steinarnir sérvaldir í hlíðum Esjunnar.




ÆVINTÝRAHLAUP


Ævintýrahlaupið var fyrst haldið 2021 og tókst mjög vel. Börn hlaupa einir eða í fylgd forráðamanna skemmtilega og fjölbreytta leið í skóginum og enda í Esjumarkinu! Öll börn fá verðlaunapening og holla hressingu að hlaupi loknu.


Keppnisgrein og verð


Mt. Esja 15 tíma keppni

Afmælisverð: 12.900 kr. (út febrúar)

Frá og með 1. mars-31. maí: 14.900 kr. 

Frá og með 1. júní: 19.900 kr.


Mt. Esja hálft maraþon: Vegalengd 21 km, hækkun 1.500 m 

Afmælisverð: 8.900 kr. (út febrúar)

Frá og með 1. mars-31. maí: 10.900 kr. 

Frá og með 1. júní: 14.900 kr.


Ævintýrahlaup

Frítt fyrir 12 ára og yngri

500 kr. fyrir 13 ára og eldri 


Innifalið í skráningargjaldi

Esju-bjórglasið fyrir þau sem klára hálft maraþon innan tímamarka og 5 ferðir í 15 klst. keppninni.

Vegleg finisher gjöf fyrir þau sem klára 5 ferðir eða fleiri í 15 tíma hlaupinu.

Tímataka, keppnisnúmer/flaga og brautargæsla.

Íþróttadrykkir og næring á drykkjarstöð við Esjustofu.

Léttar veitingar eftir hlaup. 


Skráningargjald er ekki endurgreitt en hægt verður að gera nafnabreytingar á netskraning.is (undir Mín skráning) til miðnættis 11. júní.


STAÐSETNING

Allar vegalengdir verða ræstar frá Esjustofu á mismunandi tímum (sjá rástíma hér að neðan).


RÁSTÍMAR

Mt. Esja 15 tíma keppni - kl. 8:00

Mt. Esja hálft maraþon - kl. 10:00 

Ævintýrahlaup í Esjuskógi - kl. 14:00


Nánari upplýsingar verða sendar á alla keppendur þegar nær dregur.


Aldurstakmörk

Mt. Esja hálft maraþon: 16 ára

Mt. Esja 15 tíma keppni: 18 ára


Tímatakmörk

Mt. Esja hálft maraþon: 6:00 klst.

Mt. Esja 15 tíma keppni: Keppni lýkur hjá öllum eftir 15 klst.


Útbúnaður Sterklega er mælt með því að hver keppandi hafi eftirfarandi útbúnað til taks (skyldubúnaður fyrir keppendur í hálfu maraþoni og 15 tíma keppni):

  • Fjölnota mál til að sækja vatn í læk og á drykkjarstöð
  • Álteppi
  • Farsíma
  • Nægilegt magn af næringu og vökva (0,5-1,0 L)
  • Teygjubindi
  • Jakki (Helst vatnsheldur úr öndunarefni og með hettu) - ákveðið hvort skylda á keppnisdegi.
  • Húfa eða buff og hanskar - ákveðið hvort skylda á keppnisdegi.

Nánari upplýsingar og samskipti:

Facebook skilaboð: http://www.facebook.com/mtesjaultra 

Vefsíða hlaupsins: http://www.mtesjaultra.is 



Upplýsingar um keppanda


Aukaupplýsingar í neyðartilfelli
Nauðsynlegar upplýsingar fyrir mótshaldara í neyðartilfelli.

Keppnisgreinar

13.06.2026