Mottumarshlaupið verður haldið fimmtudaginn 19. mars, hlaupið verður ræst kl. 18:00 við Fagralund í Kópavogi og liggur hlaupaleiðin um Fossvogsdalinn.
Hlaupið er einstakt í sinni röð og hentar öllum! Boðið er upp á 5 km löglega mælda braut, með tímatöku. Allir geta tekið þátt, hraðir hlauparar jafnt og þau sem vilja ganga eða skokka til stuðnings pabba, afa, frænda og öllum hinum.
Þátttökugjald:
5000 krónur fyrir 12 ára og eldri – Mottumarssokkar fylgja með
1500 krónur fyrir börn yngri en 12 ára – Mottumarsbuff fylgir með
Boðið verður upp á upphitun fyrir hlaup og drykki að loknu hlaupi.
Við lofum stuði og stemmningu um leið og við hreyfum okkur til stuðnings góðum málstað!