Molduxi trail 2025


Keppnishaldari

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
Kt. 541292-2419
Jón Kolbeinn
Símanr.: 861 1986

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Molduxi trail

Báðar leiðirnar hefjast á sama stað - við íþróttahús Sauðárkróks. Lengri leiðin hefst kl. 17:00 og sú styttri kl. 18:00.

Styttri leiðin:

Fyrsti kafli hlaupsins verður meðfram Sauðánni í gegnum Litla Skóg, en hann er eitt af kennileitum Sauðárkróks. Þegar hlaupið er upp úr skóginum liggur leiðin upp og áleiðis í átt að fjallinu Molduxa. Sú leið býður upp á gullfallega náttúru. Stórfenglegt útsýni í skóglendi og melum og allt þar á milli. Á leiðinni blasir við allur fjörðurinn og þar með eyjarnar Drangey og Málmey. Þegar hæsta punkti er náð, við rætur Molduxa (550m) er drykkjarstöð. Eftir hana liggur leiðin niður á við og farnar eru svokallaðar Kimbastaðagötur. Þær liggja í gegnum lyng, móa og mela og bjóða upp á fyrrnefnda eyjasýn ásamt útsýni yfir Héraðsvötnin og fallegar sveitir Skagafjarðar. Hlaupið endar loks aftur í Litla Skógi þar sem endamarkið liggur við upphaf skógarins.

Lengri leiðin:

Fyrsti kafli hlaupsins verður meðfram Sauðánni í gegnum Litla Skóg, en hann er eitt af kennileitum Sauðárkróks. Þegar hlaupið er upp úr skóginum liggur leiðin upp og áleiðis í átt að fjallinu Molduxa. Sú leið býður upp á gullfallega náttúru. Stórfenglegt útsýni í skóglendi og melum og allt þar á milli. Á leiðinni blasir við allur fjörðurinn og þar með eyjarnar Drangey og Málmey.

Þegar komið er að Molduxa er hlaupið til hægri (norður) og nánast alveg hringinn í kringum hann, þar til komið er að gönguleið upp á Molduxa. Farið er upp að hæsta punkti (750m) þar sem ber að líta stórfenglegt útsýni í allar áttir. Leiðin liggur svo niður aftur og er fylgt slóða að drykkjarstöð. Eftir hana liggur leiðin niður svokallaðar Kimbastaðagötur í gegnum lyng, móa og mela og blasir við fyrrnefnd eyjasýn, ásamt útsýni yfir Héraðsvötnin og fallegar sveitir Skagafjarðar. Síðustu fjórir kílómetrarnir eru svo teknir í Skógarhlíðinni sem er skógi vaxin leið með fjörlegu fuglalífi og endar leiðin svo aftur ofan í Litla Skógi þar sem endamarkið liggur við upphaf skógarins.

Verð
Núna er komið að spennandi utanvegarhlaupi í fallegu umhverfi Skagafjarðar! Þetta er einstakt tækifæri til að njóta náttúrunnar, hreyfa sig og eiga góðan dag með fjölskyldu og vinum.
Þar sem að um ræðir fyrsta hlaup hjá Molduxi trail þá verður sérstakt kynningarverð.

5.000 kr Fyrir millivegalengd (12 km )
5.000 kr Fyrir lengri vegalengd ( 20+ km )

Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

08.08.2025