Kerlingarfjöll Ultra


Keppnishaldari

Kerlingarfjöll ehf
Kt. 690508-0950

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Hálendishlaupið Kerlingarfjöll Ultra var haldið í fyrsta skipti sumarið 2024. Þátttakendur spreyttu sig á þremur hlaupaleiðum sem liggja um sundurskorin háhitasvæði, hyldjúp gljúfur, ægilega fjallstinda og að sjálfsögðu fram hjá Kerlingu — dranganum sem fjöllin draga nafn sitt af. Þátttaka fór fram úr björtustu vonum enda seldist upp á aðeins örfáum dögum og færri komust að en vildu.   


Kerlingarfjöll Ultra verður haldið að nýju laugardaginn 25. júlí 2026. Undirbúningur fyrir þessa ævintýralegu hlaupaupplifun er nú í fullum gangi og mun sala hefjast klukkan 12:00 þann 31. október 2025.

Sérstök forskráningarkjör verða í boði út desember.

Innifalið í verðinu eru veitingar á drykkjarstöðvum á meðan á hlaupi stendur, vegleg máltíð að keppni lokinni og aðgangur að heitu hálendisböðunum.

Kynntu þér hlaupið nánar inn á kerlingarfjoll.is/kerlingarfjoll-ultra



Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

25.07.2026