Orka náttúrunnar ohf.
Kt. 471119-0830
Magnús Viðar
Símanr.: 6614376
magnusvh@on.is
Hlaupaleiðin er um 13 km og með flögutímatöku, þannig að allir þátttakendur fá skráðan persónulegan tíma. Hlaupið hefst á malbiki og liggur leiðin inn í Sleggjubeinsdal, þar sem stikur leiða hlaupara upp Sleggjubeinsskarð en þar er mesta hækkunin í leiðinni og er hún um 200 metrar (um 350 metra heildarhækkun á allri leiðinni). Þegar upp er komið er hlaupið eftir grösugum stígum og jeppaslóðum, og stiklað yfir læki á köflum, meðfram Skarðsmýrarfjalli í ævintýralegu umhverfi jarðhitans. Komið er að drykkjarstöð við skálann Hreysi eftir 6 kílómetra áður en síðustu kílómetrarnir eru farnir niður í átt að virkjuninni. Þar tekur á móti hlaupurum mikilfenglegt útsýni og gleði í markinu.
Áhugaverðar gönguleiðir á svæðinu
Ókeypis þátttaka og takmarkaður sætafjöldi
Þátttaka í hlaupinu er öllum opin og er að auki ókeypis, en fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 500 manns. Forskráning fer fram á netskraning.is og einnig verður hægt að skrá sig á staðnum á meðan pláss leyfir.
Nafnabreyting er leyfileg og er hún gerð í gegnum mínar síður hér á síðunni.
Hlaupið hefst og endar við Hellisheiðarvirkjun þar sem góð bílastæði eru fyrir hendi, en við hvetjum fólk eindregið til að sameinast í bíla. Þar verður einnig til staðar hressing og stuð að hlaupi loknu.
Afhending gagna
Hægt verður að sækja hlaupagögn í Gestastofu Elliðaárstöðvar á miðvikudag og fimmtudag og í Hellisheiðarvirkjuná fimmtudag rétt fyrir hlaup. Við biðlum til fólks að sækja helst í Elliðaársstöð til að minnka álag rétt fyrir hlaup.
Gestastofa Elliðaárstöðvar
Miðvikudagur 8. júlí á milli kl 14:00 - 16:00
Fimmtudagur 9. júlí milli kl 10:00 - 13:00
Hellisheiðarvirkjun
Fimmtudagur 9. júlí milli kl 18:00 - 19:30
Orkan í náttúrunni
Hengilssvæðið er kjörinn vettvangur fyrir svona hlaup. Svæðið er ein helsta útivistarperla landsins, með yfir 110 km af merktum gönguleiðum, og þar stunda tugþúsundir manna útivist ár hvert. ON rekur þar jarðvarmavirkjanir sínar, á Nesjavöllum og á Hellisheiði en ON er stærsta jarðvarmafyrirtæki landsins. Fyrirtækið framleiðir rafmagn og heitt vatn með jarðvarma og vatnsafli og hefur hlotið Íslensku ánægjuvogina sex ár í röð fyrir framúrskarandi þjónustu. Sjálfbærni, nýsköpun og ábyrg nýting auðlinda eru leiðarljós í allri starfsemi ON. Jarðvarmahlaupið er því alveg í anda ON, þar sem orkan í náttúrunni er augljós.
Stemning á virkum degi – taktu þátt!
Jarðvarmahlaup ON er skemmtilegt, sérstakt og aðeins
öðruvísi. Það er haldið að kvöldi til á virkum degi og við lofum ekki aðeins krefjandi
leið í fallegri náttúru heldur líka
skemmtilegri stemningu, bæði í upphafi og í markinu. Hvort sem þú ert vanur
hlaupari eða bara að leita að góðri ástæðu til að hreyfa þig í fallegu
umhverfi, þá er Jarðvarmahlaupið upplagður viðburður fyrir þig.